Eiði Smára ekki skemmt Valur Páll Eiríksson skrifar 21. september 2026 15:00 Eiður Smári er goðsögn hjá Chelsea. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki hrifinn af sínu gamla félagi Chelsea sem fékk 3-0 útreið gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Eiður Smári gerði leikinn upp ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni og Halldóri Árnasyni í Messunni á Sýn Sport í gær. Chelsea átti slæman dag og tapaði 3-0 fyrir Brentford á föstudagskvöldið. „Það sem situr eftir er, hversu orkumikið og skemmtilegt þetta Brentford-lið er. Þeir gera einföldu hlutina svo ofboðslega vel. Grunngildin eru bara til staðar. Og það sem að Keith Andrews tók við liði sem okkur fannst fullmótað. Hann er búinn að betrumbæta það lið enn meira,“ segir Eiður Smári, sem sneri sér þá að Chelsea. Klippa: Eiður ósáttur við Chelsea „Chelsea aftur á móti. Hversu langur er þátturinn?“ spurði Eiður og uppskar hlátur kollega sinna. „Þetta var lélegasti leikurinn á þessu tímabili, klárlega. Og maður veltir fyrir sér, hver er þá bætingin? Jú, við erum ábyggilega skemmtilegir að horfa á, við Chelsea-menn. Við erum ábyggilega skemmtilegir að horfa fram á við þegar við erum á okkar degi, en þegar það virkar ekki, þá er ekkert svo mikið eftir,“ segir Eiður. Enzo Fernández fór frá Chelsea til Manchester City undir lok félagsskiptagluggans og miðja Chelsea var mönnuð af þeim Valentín Barco og Jordan Henderson í tapinu á föstudag. Reece James, Moises Caicedo og Romeo Lavia hafa allir átt í vandræðum með að halda sér heilum. „Ef þetta er parið á miðjunni hjá Chelsea. Jordan Henderson og Barco. Við erum ekki að fara að vinna titla né varla leiki held ég með þá tvo að stjórna miðjunni.“ Umræðuna má sjá í spilaranum.
Chelsea FC Enski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira