Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Agnar Már Másson skrifar 20. september 2026 22:01 Landsréttur tók málið fyrir í vikunni. Vísir/Viktor Freyr Ríkið hafði betur gegn hjónunum Ingu Dóru Sigurðardóttur og Berki Arnviðarsyni í Landsrétti. Málið varðar 2,5 prósenta skattaálag sem hjónunum var gert að greiða þegar þau fluttu heimilisfestu fyrirtækis síns frá Danmörku til Íslands afturvirkt. Þau fá 23 milljóna króna álagið ekki endurgreitt.
Landsréttur staðfesti í vikunni ákvörðun héraðsdóms, sem hafði sýknað ríkið í málinu. Inga og Börkur áttu hlut í félaginu Arctic Technology ApS og greiddu sér arð úr félaginu árin 2019 og 2020 sem samtals nam um 6,2 milljörðum króna. Félagið hafði á þessum tíma skattalega heimilisfestu í Danmörku og því greiddu greiddu þau 15 prósenta skatt í Danmörku og 7 prósenta skatt á Íslandi, samtals 22 prósent í samræmi við ákvæði Norðurlandasamnings sem á að koma í veg fyrir tvísköttun. Inga Dóra, sem var á þeim tíma stærðfræðikennari við Verzlunarskólann, var skattadrottning Íslands árið 2020, samkvæmt tekjublaði Stundarinnar, þar sem þau Börkur höfðu hagnast um tæpa tvo milljarða króna á sölu á hlutabréfum í danska fyrirtækinu ChemoMetec. Áætlaðar árstekjur hennar það ár voru 1.995 milljónir króna en tekjur Barkar af sölunni voru jafnframt skráðar á hana. Endurskoðandi þeirra í Danmörku mat árið 2021 að Arctic Technology væri skylt að hafa skattalega heimilisfestu á Íslandi enda væru eigendur og framkvæmdastjórar félagsins búsettir á Íslandi. Létu þau breyta skráningunni en Ríkisskattstjóri rakti þá að í reynd hefði skattaleg heimilisfesta fyrirtækisins verið hér á landi frá árinu 2006. Þau höfðu átt hlut í félaginu f Ekki er skylt að úrskurða skattalega heimilisfesti lengra en sex ár aftur í tímann og af þessum sökum var skattaleg heimilisfesti félagsins ákvörðuð hér á landi afturvirkt frá 1. janúar 2016. Danska ríkið endurgreiddi hjónunum 15 prósenta skattinn og þau greiddu hann til Íslands í staðinn árið 2023. Aftur á móti lagði Ríkisskattstjóri 2,5 prósenta álag ofan á skattgreiðsluna, sem nam þá alls um 23 milljónum króna, en hjónin sögðu það ekki eiga við þar sem þau hefðu borgað rétt á sínum tíma miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir. Landsréttur taldi að álagið væri í raun verðbætur þar sem ríkið þyrfti að fá skattinn á sama raunvirði og ef hann hefði verið greiddur strax. Þar sem þrjú til fjögur ár hefðu liðið frá ársgreiðslunni væri eðlilegt að álag kæmi til. Hjónin bentu einnig á samskipti við starfsmann skattsins sem hafði sagt þeim að breytingarnar myndu ekki fela í sér „aukakostnað“. Dómurinn sagði að hann hefði átt við annað, þyngra álag og þótt orðalagið hafi verið óheppilegt hafi hjónin, sem hafi haft sérfræðinga til aðstoðar, ekki getað treyst á að álagið félli niður. Hjónin fengu því álagið ekki endurgreitt en þeim var einnig gert að greiða 800 þúsund krónur í málskostnað ríkisins fyrir Landsrétti.
Skattar, tollar og gjöld Tekjur Dómsmál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira