„Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 21:00 Björgunarskipið Sigurvin togaði skútuna til hafnar á Siglufirði. Atli Már Markússon Þrír voru um borð í skútu sem dregin var til hafnar á Siglufirði af björgunarskipinu Sigurvini á sjöunda tímanum í dag. Fyrstu samskipti viðbragðsaðila við skipverja fóru fram í morgun þegar þeir síðarnefndu höfðu samband og óskuðu eftir aðstoð vegna þess að skútan væri vélarvana og það væri ekki nægur byr í seglin og því kæmust þeir hvorki lönd né strönd. Svo bætti í vindinn um stund og var þá hætt við að sækja skútuna en á þriðja tímanum reyndist það svo nauðsynlegt á ný.
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir þetta í samtali við blaðamann Vísis. Hann segir skútuna hafa verið ansi norðarlega þegar fyrst var óskað eftir aðstoð en um þrjátíu sjómílur, sem jafngildir um fimmtíu kílómetrum, frá mynni Siglufjarðar þegar loks var siglt af stað í átt að skútunni. Hún hafi komið erlendis frá en ekki liggi fyrir hvort skipverjarnir þrír hafi ætlað sér að sigla norður fyrir landið án þess að leggja við höfn eða dvelja hérlendis um stund. Bætt í vindinn um stund Líkt og fyrr segir hafi samskipti við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafist um og upp úr klukkan tíu í morgun en þá hafi þeim verið gert viðvart um að þremenningarnir ættu í vandræðum með vél og segl. Jón Þór segir nýju björgunarskip Landsbjargar mikið hraðskreiðari en þau sem eldri eru en að ef um tog sé að ræða fari skipin frekar hægt yfir. Vísir/Vilhelm „Það var enginn vindur. Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél,“ segir Jón Þór og bætir við að síðan hafi verið kallað út aftur um korter í þrjú. „Þá er báturinn kominn eitthvað nær og rétt um fjögur eru þeir komnir með skútuna í tog og þeir eru komnir í höfn núna rétt fyrir sjö í kvöld.“ Hann telji þá hafa metið sem svo í morgun að það myndi bæta í vind og því ekki þörf á að sigla að skútunni. „Þeir hafa gengið fram á að komast kannski í land einhvern veginn eða allavega einmitt nær, fengið byr í seglin og svo hefur nú kannski vindurinn dottið niður aftur,“ segir hann. Þrjú útköll í vikunni Það sé algengara en marga myndi gruna að björgunarsveitirnar sinni útköllum svipuðu þessu, þetta sé til að mynda þriðja útkallið þar sem vélarvana bátar eru sóttir það sem af er viku. Hann segir Sigurvin fara út á haf með fulla áhöfn, sem sé fimm eða sex manns. „Tvö tilvik í Djúpinu þar sem verið var að sækja aflvana báta,“ segir hann. Útköllin séu oft og tíðum mjög tímafrek en nýju skipin séu hraðskreiðari en þau eldri. „Sigurvin er eitt af nýju skipunum. Þá eru þeir fljótir á staðinn en þegar þeir eru búnir að, þú veist, að taka skipið auðvitað eða bátinn í tog, þá er bara farið rólega til þess að það sé, verði engin óþarfa hætta,“ segir Jón og bætir við: „Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á það í togi að skoppa eins og skopparakringla.“
Björgunarsveitir Hafið Fjallabyggð Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira