Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Agnar Már Másson skrifar 18. september 2026 16:53 Skipverjarnir tveir mættu fyrir dóm í gegnum fjarfundarbúnað í dag, en á þriðjudag voru þeir viðstaddir þinghaldið þar sem þeir leituðust við að hylja andlit sín. Vísir/Anton Brink Verjendur skipverjanna í Dettifossmálinu leggja til tveggja til þriggja ára fangelsi yfir skjólstæðingum sínum fyrir hlutdeild í fíkniefnainnflutningi. Saksóknari vill meina að um samverknað sé að ræða og fer fram á sjö ára fangelsi yfir báðum skipverjum. Til vara krefjast verjendurnir vægustu mögulegu refsingar fyrir meint brot.
Skipverjarnir eru sakaðir um að hafa „í félagi“ staðið að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínvökva frá Bremerhaven í Þýskalandi til Íslands. Þeir Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj eru einnig ákærðir í málinu en saksóknari fer fram á átta og hálfs árs fangelsisvist yfir þeim tveimur. Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi annars skipverjans, óskaði eftir 24 til 36 mánaða fangelsisdómi yfir skjólstæðingi sínum fyrir „hlutdeild“ að brotinu. Hann vísaði meðal annars í orð lögreglumanns sem sagði fyrir dómi að framburður skipverjanna hefði ávallt staðist og verið sannleikanum samkvæmur. Sá tók fram að hlutverk þeirra hefði verið neðst í keðjunni og því þyrfti að líta á aðkomu þeirra sem hlutdeildarbrot. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi hins skipverjans, lagði til að hámarki tveggja ára refsingu ef meintir aðalmenn yrðu sakfelldir. Hann mat að með tilliti til fyrri dómaframkvæmdar, ef kæmi til sakfellingar í málinu, gæti refsing aldrei farið yfir sex ár yfir meintum aðalmönnum og „burðardýrin“ ættu þá að fá helming af þeirri refsingu, sem yrði þrjú ár. En að teknu tilliti til þeirra atriða sem saksóknari vegur til refsiminnkunar – ungs aldurs, hreinnar sakaskrár og samvinnufýsnar – ætti að lækka þá refsingu enn frekar í tvö ár. Magnið meira en þeir bjuggust við Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir saksóknari lýsti því yfir fyrr í dag að hún færi fram á sakfellingu yfir skipverjunum sem samverkamönnum og fór fram á að lágmarki sjö ára fangelsisvist. Þeim til málsbóta kæmi að þeir væru báðir með hreina sakaskrá, væru ungir að aldri og hefðu verið samvinnufúsir við rannsókn málsins. Þetta telur Unnsteinn Örn vera allt of mikið og telur ljóst að um hlutdeild sé að ræða, enda hafi þeim verið lýst sem burðardýrum af lögreglunni. Þá sagði Unnsteinn að magnið hefði verið mun meira en skipverjunum var gefið til kynna. Þeir hefðu búist við sjö lítrum, ekki fjórtán lítrum sem teknir eru fram í ákæru, eða tíu lítrum sem þeir telja sig hafa tekið á móti. Skipverjarnir hafi sömuleiðis játað sína hlutdeild í málinu og telur verjandinn ekki um samverknað að ræða. „Þá rak þá í rogastans“ Sveinn Andri Sveinsson, verjandi hins skipverjans, tók einnig fram að skipverjarnir hefðu haft það afmarkaða hlutverk að flytja efnin til Íslands gegn þóknun og því væri aðkoma þeirra að meinta brotinu minni en meint aðkoma Sævars og Kastriots. Hann nefndi einnig að sinn skjólstæðingur hefði verið afar samstarfsfús. Fram hafði komið við skýrslutöku skipverjanna að þeir teldu að þær flöskur sem þeir tóku á móti í Bremerhaven hefðu verið þrjár þriggja lítra flöskur auk einnar eins lítra flösku, sem myndi alls gera tíu lítra. Sömuleiðis sögðu skipverjarnir að þær flöskur sem þeir tóku á móti í Þýskalandi hefðu allar nema ein verið ómerktar og glærar, en á mynd sem sýnd var fyrir dómi voru allar fjórar flöskurnar, sem innihéldu gylltan vökva, merktar vodkavörumerkinu Absolut. Hann sagði skipverjana hafa enga ástæðu til að „fabulera um þessar flöskur“. Aldrei hafi verið bornar undir þá við rannsókn málsins myndir af þessum flöskum. Myndir af flöskunum hafi ekki verið kynntar þeim fyrr en á öðrum degi aðalmeðferðar. „Þá rak þá í rogastans,“ sagði Sveinn Andri um það þegar skipverjarnir fengu að sjá flöskurnar í fyrsta sinn enda hefðu þeir að eigin sögn verið „hundrað þúsund prósent öruggir“ um það að þær flöskur sem þeir höfðu móttekið hefðu allar nema ein verið merktar. Báðir verjendur nefndu að orðalagið „í félagi“ vísaði gjarnan í hlutdeild í dómaframkvæmd. Forsendur samverknaðar séu þær að allir aðilar að broti séu meðvitaðir um hvert hlutverk allra er, en það eigi ekki við þegar einn „skipuleggjandi“ feli öðrum ákveðin verkefni. „Dubito ergo cogito...“ Þá gerði Sveinn aftur athugasemd við það að matsmaður frá Háskóla Íslands hafi miðað við meðalstyrkleika í Danmörku. Sagði hann meðalstyrkleiki sé mismunandi eftir Evrópulöndum og því væri ekki hægt að miða við danskt meðaltal á Íslandi „af því bara“. „Dubito ergo cogito cogito ergo sum,“ hafði Sveinn þá eftir stærðfræðingnum René Descartes, en þetta má lauslega þýða úr latínu sem: „Ég efast, þess vegna hugsa ég, ég hugsa þess vegna er ég til.“ Vildi hann sum sé meina að mat dómskvadds matsmans, sem saksóknari byggir refsikröfu sína að hluta á, byggði ekki á kerfisbundinni efahyggju, sem kennd hefur verið við Descartes. Að loknum málflutningi verjendanna sagði dómari í málinu að þinghaldi væri lokið. Mátti þá heyra háværan andardrátt til marks um létti úr salnum sem kom frá Sævari Erni Hilmarssyni, sakborningi í málinu.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Tengdar fréttir „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru. 17. september 2026 11:56 Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Aftur varð uppi fótur og fit í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar dómari veitti sækjanda í Dettifossmálinu svokallaða heimild til að leggja fram viðbótargögn sem innihéldu myndir af amfetamínbasa. Uppnám varð í dómsalnum í gær þegar sækjandi gerði tilraun til þess að leggja gagnið fram. 17. september 2026 10:07 Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu. 16. september 2026 18:00 Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Innlent Fleiri fréttir KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Sjá meira
„Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru. 17. september 2026 11:56
Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Aftur varð uppi fótur og fit í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar dómari veitti sækjanda í Dettifossmálinu svokallaða heimild til að leggja fram viðbótargögn sem innihéldu myndir af amfetamínbasa. Uppnám varð í dómsalnum í gær þegar sækjandi gerði tilraun til þess að leggja gagnið fram. 17. september 2026 10:07
Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu. 16. september 2026 18:00