Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. september 2026 12:24 Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði. vísir/getty Moskítóflugan virðist hafa gufað upp að sögn prófessors í líffræði en ekkert hefur sést til hennar í sumar. Hann segir þó enn ekki hægt að afskrifa hana fullkomlega.
Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði, segir allt líta út fyrir að vel hafi gengið að ráða niðurlögum moskító hér á landi en hún hefur ekkert látið á sér kræla í sumar. Moskítóflugan fannst á þremur stöðum á Íslandi síðasta sumar. Um tvær tegundir var að ræða og fannst fyrri tegundin í Kollafirði og í Kjós en síðari tegundin fannst í hesthúsi í Ölfusi. „Náttúrufræðistofnun Matthíasar Alfreðssonar hefur verið að reyna að útrýma henni og hann er svo til búinn af því það er hætt að veiðast í gildrur hjá honum. Það er búið að setja einhvers konar silíkonefni yfir haughús sem er undir hesthúsinu sem kæfir lirfurnar og það virðist hafa tekist vel.“ Flugan hefur heldur ekki látið sjá sig í Kjós. Samt sem áður sé ekki hægt að afskrifa hana fullkomlega. „Það er búið að leita í tjörnum þarna í nágrenninu að lirfum og þær hafa ekki fundist. Þannig að kannski, vonandi er hún bara gufuð upp, horfin. Maður þorir aldrei að segja alveg en ég myndi nú bara bíða svona aðeins lengra fram á haustið en ég er vongóður um að hún sé kannski horfin.“ Nær fjórir af hverjum tíu landsmönnum telja sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar samkvæmt könnun Gallup. Flestir sögðu sig hafa verið bitna á Suðurlandi. „Það virðist halda sér fyrst og fremst í skóglendi. Það er nú ágætt þarna í kringum eins og sumarbústaðalönd. Þetta er fyrst og fremst í sumarbústaðalöndum og hérna á tjaldstæðum þar sem ferðafólk er að fara og þar, þetta heldur sig í logninu inni í þessu skóglendi. sem eru nú á þessum stöðum og ég held að það sé nú kannski aðalástæðan að fólk sé bitið á þessum stöðum. Á berangri er fólk yfirleitt ekkert bitið af lúsmýi.“ Þegar könnunin var fyrst lögð fram árið 2019 svöruðu fjórtán prósent játandi og á síðasta ári töldu 32 prósent þjóðarinnar sig hafa orðið fyrir barðinu á lúsmýi. Gísli telur þó ekki að þetta muni aukast á hverju ári. „Ég var nú að vona að hún væri komin í nýtt jafnvægi. Oft þegar nýjar tegundir nema land að þá er mikið af fæði og auðlindum svo að stofnarnir verða stórir. Svo ganga þær á þetta og svo reyndar stækka stofnar rándýra sem lifa á þeim. Þannig að ég er að vona að hún sé að fara niður á aðra stofnstærðareiningu sem hún var áður svo hún verði ekki þessi pest í framtíðinni. Það var samt ekki eins mikið kvartað þó að helmingur landsmanna segðist hafa verið bitinn.“ Eru Íslendingar kannski að venjast þessari ókind? „Ég held það.“
Dýr Skordýr Moskítóflugur Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira