Flugeldasýning á frumsýningu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. september 2026 11:30 Allt trylltist er Josh Allen, leikstjórnandi Bills, var kynntur til leiks á nýja vellinum. vísir/getty Buffalo Bills spiluðu sinn fyrsta leik á nýjum og glæsilegum heimavelli í gær og frammistaða þeirra var frábær. Þeir völtuðu yfir Detroit Lions, 41-31, í mögnuðum leik.
Það var vel við hæfi að Josh Allen, leikstjórnandi Bills, skildi skora fyrsta snertimarkið á nýja Highmark-vellinum sem er hinum megin við götuna frá gamla vellinum. Allen bauð síðan upp á ofurmannlega frammistöðu. Kastaði boltanum 248 jarda og þar af kastaði hann þrisvar fyrir snertimarki. Hann hljóp svo 69 jarda og skokkaði tvisvar í mark. Fimm snertimarka fimmtudagur hjá honum. FOUR touchdowns for Josh Allen before the half 🔥DETvsBUF – on Prime VideoStream on @NFLPlus pic.twitter.com/lI4OWKUnvL— NFL (@NFL) September 18, 2026 Hlauparinn James Cook líka geggjaður með 135 hlaupajarda og eitt snertimark. Frammistaða Keon Coleman vakti líka mikla athygli en hann greip allar sex sendingarnar sem hann fékk til sín fyrir 63 jördum. Það er búið að bíða eftir svona frammistöðu frá honum. Bills komst í 21-0 í leiknum og Lions náði í raun aldrei að ógna. Það var ekki sókninni að kenna enda var hún frábær. Varnarleikurinn var aftur á móti hreinasta hörmung. Leikstjórnandi Lions, Jared Goff, kastaði boltanum 327 jarda og þar af kastaði hann fyrir fjórum snertimörkum. Amon-Ra St. Brown greip tvær snertimarkssendingar og var með 142 gripna jarda. Bills er búið að vinna fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu en Lions er með einn vinning.
NFL Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Sjá meira