Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Eiður Þór Árnason skrifar 17. september 2026 16:45 Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins. vísir/bjarni Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Þar hafi hún tjáð honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Hann sagði sig úr flokknum í kjölfarið.
Þetta segir Guðmundur Ingi Kristinsson í samtali við RÚV um samskipti sín við Ingu Sæland. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans en það hafi verið samtal hennar við eiginkonu hans sem hafi orðið þess valdandi að hann ákvað að yfirgefa Flokk fólksins. „Það var samtal um að hún vildi koma inn á sjúkrastofuna og hitta mig vegna þess að henni fannst ég hafa verið allt of lengi frá, níu daga og þetta gengi ekki upp. Ég yrði bara að hætta sem ráðherra,“ segir hann í frétt RÚV. Konan hans hafi neitað því að hleypa henni inn á sjúkrastofuna. Þetta hafi verið á þriðja degi jóla í fyrra og það mætti bíða með þetta þar til Guðmundur kæmi heim. Hann tilkynnti svo þann 8. janúar að hann myndi segja af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann myndi halda áfram sem þingmaður Flokks fólksins. Í apríl var svo greint frá afsögn Guðmundar úr Flokki fólksins. Þá sagði hann ótilgreindan persónulegan trúnaðarbrest sem varðaði persónuleg samskipti innan flokksins ástæðu brotthvarfsins. „Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins. Ég sagði mig úr flokknum í morgun og hef greint forseta Alþingis frá þessari ákvörðun. Ég hyggst áfram gegna störfum sem Alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka. Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka,“ sagði í yfirlýsingu frá honum á þeim tíma. Við það tilefni gaf Inga út að mikil eftirsjá væri af Guðmundi Inga. „Nú þegar Flokkur fólksins er kominn til áhrifa með þátttöku í ríkisstjórn til að fylgja eftir okkar baráttumálum, er því sárt að hann skuli kjósa að starfa einn utan þingflokka á Alþingi. Það er hins vegar með stjórnmálin eins og annað í lífinu, hver og einn verður að ráða sínum næturstað. Ég þakka Guðmundi Inga fyrir náið og gott samstarf síðast liðin áratug og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.“ Fréttastofa hefur óskað eftir viðbrögðum frá Ingu Sæland. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Hafnar því að hafa reynt að bola sér inn á sjúkrastofu Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira