„Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Agnar Már Másson skrifar 17. september 2026 11:56 Sævar Hilmarsson faðmar verjanda sinn, Stefán Karl Kristjánsson í gær. Vísir Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru.
Aðalmeðferð í Dettifossmálinu hélt áfram í morgun. Sakborningar gáfu skýrslu í gær en Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj, sem eru sagðir hafa skipulagt innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínvökva, voru ekki viðstaddir þinghaldið í dag. Skipverjarnir tveir sem einnig eru ákærðir voru þó viðstaddir í dag í gegnum fjarfundarbúnað. Dómskvaddur matsmaður frá Háskóla Íslands mat svo að úr 14,1 lítra af ætluðum amfetamínvökva væri hægt að fá 6,3 kíló af amfetamínbasa og úr því væri hægt að fá 8,6 kíló af hreinu amfetamínsúlfati. Styrkur vökvans hafi verið aðeins yfir meðaltali samkvæmt gögnum frá Danmörku. Lítratal á reiki Lögreglumaður gerði síðan grein fyrir efnaskýrslum þar sem fram kom að vökvinn hefði fundist í fjórum Absolut-vodkaflöskum, sem hefðu verið vafðar í plast og geymdar í íþróttatösku. Ekki hefur komið skýrt fram hversu stórar flöskurnar voru, en fram kom í vitnisburði annars skipverja að flöskurnar hafi virst vera þrjár í þriggja lítra stærð og ein í eins lítra stærð, sem myndi alls gera tíu lítra. „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ spurði Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars, þá. Þessu kvaðst lögreglumaðurinn ekki getað svarað. Annar lögreglumaður greindi síðan frá því að vopn og lyf hefðu fundist á víð og dreif í húsleit á heimili eins sakbornings, meðal annars svartur hnífur. Þá hefðu fundist kylfur með áföstu vasaljósi í endanum. Einnig hefði hafnaboltakylfa verið tekin. Þá hefðu fundist lyf og sterar í eldhúsinu. Þá hefðu fundist klóróform auk einhvers konar spíra eða landa. Þriðji lögreglumaður sagðist síðan hafa í húsleitinni lagt hald á tölvur og síma en einnig Rolex-úr og Louis Vuitton-töskur. Sami lögreglumaður réðst í handtöku á öðrum skipverjanum, sem var sagður í miðjum klíðum að bera umræddar íþróttatöskur (með ætluðum amfetamínvökva) úr bíl kunningja síns þegar lögreglu bar að garði. Síðan hafi þeir beðið um að komast inn í síma skipverja, og í framhaldi af því hafi vaknað grunur um aðkomu Sævars Arnar að málinu. „Nei, við gerðum það ekki“ Fjórði lögreglumaður lýsti þá húsleit á heimili Kastriots þar sem fundist hafi peningur, fartölvur, sími, testósterón, kannabis og víagra. Kannabisefnið hafi þó virst gamalt enda þurrt. Lögreglumaðurinn sagði Kastriot hafa snöggreiðst þegar lögregla sýndi honum kannabisefnið sem hafði fundist og sakaði lögregluna – rétt eins og hann gerði fyrir dómi í gær – að hafa komið efnunum þar fyrir. „Nei, við gerðum það ekki,“ svaraði lögreglumaðurinn þegar saksóknari spurði hvort lögreglan hefði gert það. Hann neitaði því einnig að lögreglan hefði haldið síma hans fyrir framan andlit hans til þess að opna hann með andlitsgreiningu. Varðandi víagrað sagði Kastriot í gær að hann væri karlmaður og þeir þyrftu stundum að nota víagra.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Smygl Fíkniefnabrot Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira