Spreyttu þig á PISA-spurningunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Hjalti Freyr Ragnarsson skrifa 17. september 2026 08:00 Nú getur þú spreytt þig á sömu PISA-spurningunum og íslenskir nemendur. Vísir/Anton Brink Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára.
Niðurstöður PISA-könnunarinnarsem lagðar voru fyrir nemendur í 10. bekk árið 2025 vöktu mikil viðbrögð enda hrakar íslenskum nemendum enn frekar þegar litið er til lesskilnings, stærðfræðilæsis og náttúruvísinda. Fréttastofa hefur undir höndum spurningar í lesskilningi sem lagðar voru fyrir nemendur árið 2018, spurningar í stærðfræði frá árinu 2022 og loks spurningar í náttúruvísindum sem voru hluti af könnuninni árið 2025. Hér er vert að taka fram að hér er aðeins um nokkrar spurningar úr prófunum að ræða. Þá er mikil fjölbreytni í verkefnum PISA sem tryggir að mælingin nái betur yfir marga ólíka þætti matssviðanna. Með því fái bæði afburðanemendur og nemendur sem hafa takmarkaði hæfni verkefni við hæfi. Lesskilningur Ímyndaðu þér að á bókasafni í nágrenninu verði haldinn fyrirlestur í næstu viku. Fyrirlesturinn verður haldinn af prófessor úr háskóla í nágrenninu. Hún mun tala um rannsóknir sínar á eyjunni Rapa Nui í Kyrrahafinu, rúmlega 3.200 kílómetrum vestur af Síle. Nemendur í söguáfanganum þínum fara á fyrirlesturinn. Kennarinn ykkar biður ykkur að lesa ykkur til um sögu Rapa Nui svo þið hafið einhverja vitneskju áður en þið farið á fyrirlesturinn. Fyrsta heimildin sem þú lest er bloggfærsla sem prófessorinn skrifaði þegar hann bjó á Rapa Nui. Lesskilningstexti Útrýmdu pólýnesískar rottur trjánum á Rapa Nui? Eftir Michael Kimball, vísindablaðamann Árið 2005 gaf Jared Diamond út bókina Collapse. Í bókinni lýsir hann landnámi manna á Rapa Nui (einnig kölluð Páskaeyja). Bókin olli miklum deilum skömmu eftir að hún kom út. Margir vísindamenn efuðust um kenningu Diamond um hvað hefði gerst á Rapa Nui. Þeir voru sammála um að gróðursettu trén hefðu verið horfin þegar Evrópumenn komu fyrst til eyjarinnar á 18. öld, en þeir voru ekki sammála kenningu Jared Diamond um ástæðu þess að þau hurfu. Nú hafa tveir vísindamenn, Carl Lipo og Terry Hunt, birt nýja kenningu. Þeir eru þeirrar skoðunar að pólýnesíska rottan hafi étið fræ trjánna og þannig komið í veg fyrir að ný gætu vaxið. Þeir telja að rotturnar hafi annaðhvort slæðst með eða verið teknar viljandi með í kanóana sem fyrstu landnemarnir notuðu til að komast til Rapa Nui. Rannsóknir hafa sýnt að rottustofn getur tvöfaldast á 47 daga fresti. Það eru margar rottur sem þarf að fæða. Til stuðnings kenningu sinni benda Lipo og Hunt á leifar af fræjum pálmatrjáa sem sýni nagför eftir rottur. Vissulega viðurkenna þeir að menn hafi átt stóran þátt í eyðileggingu skógarins á Rapa Nui. En þeir telja að á meðal ýmissa þátta hafi pólýnesíska rottan verið enn meiri skaðvaldur. 1. Um hvað eru vísindamennirnir í greininni og Jared Diamond sammála um? Menn námu land á Rapa Nui fyrir hundruðum ára. Stór tré eru horfin af Rapa Nui. Pólýnesískar rottur átu fræ stórra trjáa á Rapa Nui. Evrópumenn komu til Rapa Nui á 18. öld. 2. Hvaða sannanir leggja Carl Lipo og Terry Hunt fram til að rökstyðja kenningu sína um af hverju stór tré á Rapa Nui hafi horfið? Rotturnar bárust til eyjarinnar í kanóum landnemanna. Landnemarnir gætur hafa tekið rotturnar með sér viljandi. Rottustofn getur tvöfaldast á 47 daga fresti. Leifar af fræjum pálmatrjáa sýna nagför eftir rottur. Stærðfræði Alex teiknaði eftirfarandi mynstur af rauðum og bláum þríhyrningum. Fyrstu fjórar raðir mynstursins eru sýndar hér fyrir neðan. 1. röð 2. röð 3. röð 4. röð 1. Hvaða prósenta af þríhyrningunum í fyrstu fjórum röðunum í mynstrinu hans Alex eru bláir? 37,5% 50,0% 60,0% 62,5% 2. Ef Alex myndi bæta fimmtu röðinni við mynstrið, hve mörg prósent yrðu þá bláir þríhyrningar af öllum fimm röðum mynstursins? 40,0% 50,0% 60,0% 66,7% 3. Alex ætlar að bæta fleiri röðum við mynstrið. Hann staðhæfir að bláir þríhyrningar verði alltaf minna en 50% af mynstrinu. Hefur Alex rétt fyrir sér? Já Nei 4. Útskýrðu svar þitt. Sýna svar Til að fá fullt hús stiga þarf að velja já og taka eitt af þessu fram: Það eru alltaf einum fleiri rauðir þríhyrningar í hverri röð. Það eru alltaf einum færri bláir þríhyrningar í hverri röð. Það eru fleiri rauðir þríhyrningar en bláir. Rauðir þríhyrningar eru alltaf á báðum endum raðanna og fyrir innan eru rauðir og bláir þríhyrningar til skiptis. Náttúruvísindi Margir hafa áhyggjur af þeim hnattrænu umhverfisáhrifum sem leiða af framleiðslu og förgun fatnaðar. Bómullartrefjar koma úr ytra lagi fræja bómullarplöntunnar. Samanborið við gervitrefjar þurfa bómullartrefjar minni vinnslu og þær brotna niður í náttúrunni á auðveldari hátt. Framleiðsla vefnaðarvöru úr bómull þarfnast mikils magns af vatni, áburði, skordýraeitri og öðrum skaðlegum efnum. Til að reyna að leysa þessi vandamál er verið að þróa sjálfbærari aðferðir til að framleiða bómull. 1. Hvað af eftirfarandi er hægt að gera til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af framleiðslu á bómullarvefnaði? Veldu öll rétt svör. Nota vatn á skilvirkari hátt. Draga úr gæðum bómullarvefnaðarins sem er framleiddur. Fjölga starfsfólkin sem vinnur á bómullarbýlum. Nota skordýraeitur sem er aðeins skaðlegt fyrir þá tegund skaðvalds sem það á að vinna gegn. Farga efnaúrgangi langt í burtu frá stöðum þar sem bómullarframleiðsla fer fram. 2. Til að bómull geti fengið lífræna vottun má hún ekki vera ræktuð með tilbúnum áburði eða skordýraeitri. Erfðabreyttar bómullarplöntur teljast heldur ekki vera lífrænar. Einn rannsakandi hélt þessu fram: „Lífræn bómullarframleiðsla er sjálfbærari en bómullarframleiðsla sem ekki er lífræn, vegna þess að við lífræna bómullarframleiðslu er notað minna vatn.“Hver af eftirfarandi staðhæfingum styður við fullyrðingu rannsakandans? Erfðabreyttar bómullarplöntur þurfa minna vatn en bómullarplöntur sem ekki eru erfðabreyttar. Náttúrulegur áburður er notaður við lífræna ræktun á bómull og þess vegna helst vatn lengur í jarðveginum. Bómullarplöntur sem notaðar eru í lífrænni ræktun þurfa sama magn af vatni og aðrar lífrænt ræktaðar nytjaplöntur. Bómull þarf mikið vatn til að vaxa.
PISA-könnun Grunnskólar Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira