Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. september 2026 14:50 Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi segir samtalið halda áfram við sendla á vegum fyrirtækisins. Færri sendingar og minni eftirspurn í haust eru meðal þeirra ástæða að tekjur sendla hjá Wolt á Íslandi hafa minnkað síðan í upphafi ársins, að því er segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. Sendlar séu að meðaltali með laun upp á 6100 krónur fyrir hverja vinnustund. Fyrirtækið segist hafna því alfarið að það stundi gerviverktöku, búist sé við því að staðan batni eftir því sem líði á veturinn. Sendlar félagsins lögðu í gær tímabundið niður störf og sögðu laun sín hafa lækkað um fjörutíu prósent frá því í upphafi ársins. Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ sagði verkalýðsfélög ítrekað hafa reynt að ná samkomulagi við Wolt um kjarasamning við starfsmenn án árangurs, starfsemin standist hvorki lög né reglur í launamálum. „Við hjá Wolt ítrekum að við tökum áhyggjum sendla alvarlega. Gögn okkar sýna þó að greiðslur fyrir hverja sendingu hafa að jafnaði haldist nokkuð stöðugar undanfarið árið. Greiðslur fyrir einstaka sendingar eru mismunandi og ráðast meðal annars af vegalengd, stærð pöntunar og áætluðum afhendingartíma. Minniháttar breytingar hafa verið gerðar með reglulegum hætti á greiðslufyrirkomulaginu og eru þær alltaf kynntar sendlum fyrirfram,“ segir í yfirlýsingu frá Wolt á Íslandi. „Samkvæmt gögnum okkar eru meðaltekjur sendla um 6.100 krónur á hverja virka vinnustund, þ.e. þegar þeir eru að sinna sendingum. Þetta er meðaltal og tekjur einstakra sendla eru mismunandi. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að greiðsla fyrir hverja sendingu segir ekki alla söguna þar sem sendlar vinna mismikið og á mismunandi tímum.“ Undanfarið hafi færri sendingar verið í boði fyrir hvern sendil á ákveðnum tímum. Eftirspurn sé almennt meiri yfir vetrartímann en á sumrin. „Þess vegna tökum við nýja sendla inn í áföngum eftir sumarið til að undirbúa okkur fyrir aukna eftirspurn. Í ágúst jókst eftirspurn ekki eins hratt og við höfðum gert ráð fyrir og því voru fleiri sendlar til taks en þörf var á. Þetta hefur tímabundið fækkað þeim sendingum sem hver sendill getur tekið að sér á ákveðnum tímum í haust og þar með dregið úr heildartekjum sendla. Við búumst við að staðan batni þegar eftirspurn eykst yfir vetrartímann.“ Fyrirtækið segist hægja á eða gera hlé á því að taka inn sendla þegar fjöldi þeirra sé meiri en eftirspurnin gefi tilefni til. Það skipti máli að ná þessu jafnvægi, bæði fyrir tekjur sendla og til að tryggja áreiðanlega afhendingu fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila. Vöxtur Wolt á Íslandi hafi verið mikill og því geti það reynst krefjandi að tryggja réttan fjölda af sendlum hverju sinni. „Við höfnum því alfarið að Wolt stundi gerviverktöku. Félagið er með öll tilskilin leyfi og réttindi til að starfa sem markaðstorg með heimsendingar. Sendlar eru sjálfstæðir verktakar sem ráða sjálfir hvenær, hvar og hversu mikið þeir sinna sendingum og hvort þeir samþykkja einstök sendingartilboð. Um 1.000 sendlar eru nú í samstarfi við Wolt á Íslandi. Ánægja sendla á Íslandi mælist nú 4,75 af 5, samanborið við 4,7 að meðaltali árið 2025. Þótt það sé jákvæð niðurstaða dregur hún ekki úr alvarleika málsins sem sendlarnir sem mótmæltu hafa komið á framfæri. Við virðum rétt þeirra til að mótmæla með friðsamlegum hætti og höfum boðið fulltrúum hópsins á fund. Við viljum heyra þeirra sjónarmið, fara saman yfir málin og ræða hvað megi betur fara.“ Yfirlýsing Wolt í heild sinni: Yfirlýsing um tekjur sendla á Íslandi (17. september) Við hjá Wolt ítrekum að við tökum áhyggjum sendla alvarlega. Gögn okkar sýna þó að greiðslur fyrir hverja sendingu hafa að jafnaði haldist nokkuð stöðugar undanfarið árið. Greiðslur fyrir einstaka sendingar eru mismunandi og ráðast meðal annars af vegalengd, stærð pöntunar og áætluðum afhendingartíma. Minniháttar breytingar hafa verið gerðar með reglulegum hætti á greiðslufyrirkomulaginu og eru þær alltaf kynntar sendlum fyrirfram. Samkvæmt gögnum okkar eru meðaltekjur sendla um 6.100 krónur á hverja virka vinnustund, þ.e. þegar þeir eru að sinna sendingum. Þetta er meðaltal og tekjur einstakra sendla eru mismunandi. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að greiðsla fyrir hverja sendingu segir ekki alla söguna þar sem sendlar vinna mismikið og á mismunandi tímum. Undanfarið hafa færri sendingar verið í boði fyrir hvern sendil á ákveðnum tímum. Eftirspurn er almennt meiri yfir vetrartímann en á sumrin. Þess vegna tökum við nýja sendla inn í áföngum eftir sumarið til að undirbúa okkur fyrir aukna eftirspurn. Í ágúst jókst eftirspurn ekki eins hratt og við höfðum gert ráð fyrir og því voru fleiri sendlar til taks en þörf var á. Þetta hefur tímabundið fækkað þeim sendingum sem hver sendill getur tekið að sér á ákveðnum tímum í haust og þar með dregið úr heildartekjum sendla. Við búumst við að staðan batni þegar eftirspurn eykst yfir vetrartímann. Við hægjum á eða gerum hlé á því að taka inn nýja sendla þegar fjöldi þeirra er meiri en eftirspurn gefur tilefni til. Það skiptir máli að ná þessu jafnvægi, bæði fyrir tekjur sendla og til að tryggja áreiðanlega afhendingu fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila. Vöxtur Wolt á Íslandi hefur verið mikill því getur það reynst krefjandi að tryggja réttan fjölda af sendlum hverju sinni. Við höfnum því alfarið að Wolt stundi gerviverktöku. Félagið er með öll tilskilin leyfi og réttindi til að starfa sem markaðstorg með heimsendingar. Sendlar eru sjálfstæðir verktakar sem ráða sjálfir hvenær, hvar og hversu mikið þeir sinna sendingum og hvort þeir samþykkja einstök sendingartilboð. Um 1.000 sendlar eru nú í samstarfi við Wolt á Íslandi. Ánægja sendla á Íslandi mælist nú 4,75 af 5, samanborið við 4,7 að meðaltali árið 2025. Þótt það sé jákvæð niðurstaða dregur hún ekki úr alvarleika málsins sem sendlarnir sem mótmæltu hafa komið á framfæri. Við virðum rétt þeirra til að mótmæla með friðsamlegum hætti og höfum boðið fulltrúum hópsins á fund. Við viljum heyra þeirra sjónarmið, fara saman yfir málin og ræða hvað megi betur fara. Heimsendingarþjónusta Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Sjá meira
Yfirlýsing Wolt í heild sinni: Yfirlýsing um tekjur sendla á Íslandi (17. september) Við hjá Wolt ítrekum að við tökum áhyggjum sendla alvarlega. Gögn okkar sýna þó að greiðslur fyrir hverja sendingu hafa að jafnaði haldist nokkuð stöðugar undanfarið árið. Greiðslur fyrir einstaka sendingar eru mismunandi og ráðast meðal annars af vegalengd, stærð pöntunar og áætluðum afhendingartíma. Minniháttar breytingar hafa verið gerðar með reglulegum hætti á greiðslufyrirkomulaginu og eru þær alltaf kynntar sendlum fyrirfram. Samkvæmt gögnum okkar eru meðaltekjur sendla um 6.100 krónur á hverja virka vinnustund, þ.e. þegar þeir eru að sinna sendingum. Þetta er meðaltal og tekjur einstakra sendla eru mismunandi. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að greiðsla fyrir hverja sendingu segir ekki alla söguna þar sem sendlar vinna mismikið og á mismunandi tímum. Undanfarið hafa færri sendingar verið í boði fyrir hvern sendil á ákveðnum tímum. Eftirspurn er almennt meiri yfir vetrartímann en á sumrin. Þess vegna tökum við nýja sendla inn í áföngum eftir sumarið til að undirbúa okkur fyrir aukna eftirspurn. Í ágúst jókst eftirspurn ekki eins hratt og við höfðum gert ráð fyrir og því voru fleiri sendlar til taks en þörf var á. Þetta hefur tímabundið fækkað þeim sendingum sem hver sendill getur tekið að sér á ákveðnum tímum í haust og þar með dregið úr heildartekjum sendla. Við búumst við að staðan batni þegar eftirspurn eykst yfir vetrartímann. Við hægjum á eða gerum hlé á því að taka inn nýja sendla þegar fjöldi þeirra er meiri en eftirspurn gefur tilefni til. Það skiptir máli að ná þessu jafnvægi, bæði fyrir tekjur sendla og til að tryggja áreiðanlega afhendingu fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila. Vöxtur Wolt á Íslandi hefur verið mikill því getur það reynst krefjandi að tryggja réttan fjölda af sendlum hverju sinni. Við höfnum því alfarið að Wolt stundi gerviverktöku. Félagið er með öll tilskilin leyfi og réttindi til að starfa sem markaðstorg með heimsendingar. Sendlar eru sjálfstæðir verktakar sem ráða sjálfir hvenær, hvar og hversu mikið þeir sinna sendingum og hvort þeir samþykkja einstök sendingartilboð. Um 1.000 sendlar eru nú í samstarfi við Wolt á Íslandi. Ánægja sendla á Íslandi mælist nú 4,75 af 5, samanborið við 4,7 að meðaltali árið 2025. Þótt það sé jákvæð niðurstaða dregur hún ekki úr alvarleika málsins sem sendlarnir sem mótmæltu hafa komið á framfæri. Við virðum rétt þeirra til að mótmæla með friðsamlegum hætti og höfum boðið fulltrúum hópsins á fund. Við viljum heyra þeirra sjónarmið, fara saman yfir málin og ræða hvað megi betur fara.
Heimsendingarþjónusta Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Sjá meira