Atvinnulíf

Nostradamus í at­vinnu­lífinu: Tíu dæmi um breytingar í dag­legu lífi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Á 16.öld spáði Nostradamus fyrir járnfuglum (flugvélum) sem ferðust um loftin og að orð og raddir myndu ferðast á milli fjarlægra heimsálfa á augabragði (fjarskipti). Nú liggja fyrir spár um áhrif gervigreindarinnar á okkar daglega líf. Og í þetta sinn er ekki langt að bíða...
Á 16.öld spáði Nostradamus fyrir járnfuglum (flugvélum) sem ferðust um loftin og að orð og raddir myndu ferðast á milli fjarlægra heimsálfa á augabragði (fjarskipti). Nú liggja fyrir spár um áhrif gervigreindarinnar á okkar daglega líf. Og í þetta sinn er ekki langt að bíða... Vísir/Getty

Umræðan um gervigreindina er svo allsráðandi að sumum finnst mikið meira en nóg um. Ekkert virðist gervigreindinni heilagt og á stundum er þetta orðið að jafn þreytandi umræðu og ESB fyrir lok ágúst.

Nema að það er engin dagsetning á gervigreindinni. Sú umræða mun halda áfram og er eflaust bara rétt á byrjunarstigi.

En hvernig væri þá að leyfa okkur að skyggnast aðeins inn í framtíðina og reyna að sjá hvernig breytingarnar verða í atvinnulífi og okkar daglega lífi?

Nýjar greiningar og spár um framtíðina gefa okkur ágætis innsýn í það sem framundan er. Til dæmis skýrslur frá  PwC (AI Jobs Barometer), Gartner (Top Strategic Technology Trends), McKinsey Global Institute og Reuters Institute við Oxford-háskóla. 

Hér eru tíu dæmi, innblásin af þessum skýrslum. Dæmin eru ekki heilagur sannleikur en geta gefið okkur hugmynd um það sem fram undan er:

1. Verslanir: Verða félagsmiðstöðvar og sýningarsalir

Persónulegur gervigreindarþjónn sér um að panta mjólk, þvottaefni eða hvað annað áður en það klárast. Líka sokka og helstu flíkur.

Búðir hætta að vera staðir til að kaupa hversdagsnauðsynjar. Þess í stað förum við í bæinn til að upplifa: Smakka nýjan mat, máta, spjalla, fá innblástur og hitta fólk.

2. Flugsamgöngur verða eins og Netflix-áskrift

Flugvélar fljúga í sjálfvirkt bestuðum loftgöngum sem lágmarka bæði seinkanir og eldsneyti.

En stóra breytingin snýr að okkur: Við hættum að bóka stök flug. Þess í stað borgum við mánaðaráskrift.  Gervigreind flugfélagsins notar gögn til að fylla sæti sem annars væru tóm og spá fyrir um nýtingu véla í rauntíma.

Ferðalög verða líka skipulögð af gervigreindaraðstoðarmanni. Sem skipuleggur ferðalagið fyrirfram miðað við dagskrá, veður og fleira. 

Flugvellir breytast í hljóðlátar, biðlausar gáttir án innritunarborða.

3. Bílar verða vinnustofur og svefnherbergi

Sjálfkeyrandi bílar hætta að vera „aksturstæki“ og verða hreyfanleg herbergi. Stýrið og bílstjórasætið hverfa.

Ferðatíminn fer í að loka augunum, taka fjarfund eða klára næsta þátt. Bílaeign fjarar smám saman út fyrir sjálfkeyrandi bílaflota sem við deilum.

4. Ummönnun og heilsugæsla verða fyrirbyggjandi vöktun

Snjallúr, hringir og jafnvel klósettið heima fylgjast með líkamshitanum, svefninum og blóðgildum.

Læknirinn heyrir í þér áður en þú nærð að finna fyrir veikindum.

Fyrir vikið losnar ummönnunarfólk undan skriffinnsku og getur sinnt því sem vélar geta ekki: Nærveru, hlýju og raunverulegri samkennd.

5. Skólar snúast um hugsun frekar en staðreyndir

Þegar svör við öllum heimsins spurningum fást á sekúndubroti þýðir lítið að prófa krakka úr utanbókarlærdómi eða stöðluðum ritgerðum.

Kennarinn verður eins og einkaþjálfari sem kennir gagnrýna hugsun, siðfræði, samvinnu og hvernig maður stjórnar gervigreindinni í stað þess að láta hana stjórna sér.

6. Lögfræði og fjármál verða „stjórnun reiknirita“

Bókhald, einfaldir samningar og áreiðanleikakannanir keyra sjálfkrafa á bak við tjöldin. Sérfræðingarnir hætta að sökkva sér ofan í lagabálka og reiknivélar og einbeita sér að því mikilvægasta: Stefnumótun, siðfræði og því að ná fólki saman við samningaborðið.

7. Fréttir verða sniðnar að þínu lífi

Engir tveir lesa sömu útgáfu fjölmiðla. Gervigreindin lagar fréttir dagsins að þínum áhugasviðum og tíma — hvort sem það er hálfrar mínútu hljóðbútur í morgunsturtunni eða ítarleg skýring á því hvað nýtt frumvarp þýðir fyrir þitt eigið veski.

Sjálfvirk reiknirit skrifa íþróttaúrslit, afkomutölur fyrirtækja og tilkynningar lögreglu á millisekúndu.

Hlutverk blaðamannsins verður að grafa upp það sem vélin kemst ekki í: persónuleg viðtöl, lokuð fundarherbergi og siðferðisbrot valdafólks.

8. „Handunnið“ verður helsti gæðastimpillinn

Í heimi þar sem allt er yfirfullt af gerviefni og djúpfölsunum verður til mikil eftirspurn eftir hinu ófullkomna og mannlega.

Rannsóknarblaðamennska, einlæg viðtöl og traust verða helsta söluvaran — svipað og við borgum fúslega meira fyrir handgert súrdeigsbrauð en verksmiðjuframleitt samlokubrauð.

9. Veitingastaðir verða leikhús fremur en fóðurstöðvar

Þegar eldhústækin heima geta eldað fullkomna máltíð með sjálfstýringu fer enginn út að borða bara til að seðja hungur.

Við förum út á veitingastaði til að fá sýningu: Persónulega gestrisni, sögur af hráefninu og handbragð sem vélarnar ná ekki að herma eftir.

10. Ferðaþjónusta snýst um sögur, ekki staðreyndir

Heyrnartólið með gervigreindinni veit nú þegar allt um byggingarár kirkjunnar og sögulegar dagsetningar.

Hlutverk mannlega leiðsögumannsins verður því að opna dyr sem gagnasöfn komast ekki að: tengja okkur við heimamenn, staðarandann og þær sögur sem aðeins lifa í minni fólks.


Tengdar fréttir

Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar?

Í söguhorninu í dag ætlum við að velta fyrir okkur hvernig vald á vinnustöðum var áður sýnilegra og hversu mikið vinnustaðir hafa breyst miðað við mismunandi áherslur í stjórnun og samfélagi.

Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn

Lengi hefur það verið nokkuð vinsælt efni í fjölmiðlum að birta fréttir um ráðningar á vinnustöðum. Í atvinnulífinu getur það jafnvel verið ákveðin staðfesting á mikilvægi þínu að fjölmiðlar birti um ráðninguna þína frétt.

Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt?

Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×