Sleppir landsleikjunum fyrir brúðkaupsferð Valur Páll Eiríksson skrifar 17. september 2026 11:30 Alphonso Davies er kominn á fullt með Bayern eftir erfiða tíma undanfarin misseri. Sebastian Widmann/Getty Images Alphonso Davies, landsliðsfyrirliði Kanada, mun ekki taka þátt í komandi landsliðsglugga sökum þess að hann verður í brúðkaupsferð. Þetta staðfesti þjálfari kanadíska liðsins.
Davies er 25 ára gamall og stjörnuleikmaður í kanadíska liðinu. Hann hefur þó aðeins spilað einu sinni fyrir liðið frá því í mars 2025 vegna látlausra meiðsla. Eini leikurinn kom á HM í sumar þar sem honum tókst að spila 16 mínútur í tapleik Kanada í 16-liða úrslitum mótsins fyrir Marokkó. Langur landsleikjagluggi er fram undan þar sem Kanada mun spila þrjá æfingaleiki við Síle, Perú og Bandaríkin. Jesse Marsch, þjálfari kanadíska liðsins, segir að Davies missi af leikjunum en komi aftur til móts við kanadíska liðið í landsleikjaglugganum í nóvember. „Alphonso vildi vera með okkur og við vildum hafa hann í verkefninu, en hann gifti sig fljótlega eftir heimsmeistaramótið. Á meðan HM stóð var margt í gangi hjá honum og hann var að berjast við sjálfan sig líkamlega. Við ræddum um möguleika á því að hann færi í brúðkaupsferð og kæmi svo til móts við okkur,“ „En niðurstaðan var að hann fái að fara í brúðkaupsferðina og haldi svo áfram vinnunni í skrokknum og komi sér í form. Hann er að spila vel og lítur vel út. Við viljum vera þess fullvissir að hann mæti til leiks í nóvember og gíri sig upp í keppnisleiki sem eru fram undan,“ segir Marsch. Davies hefur spilað alla sex leiki Bayern Munchen hingað til á leiktíðinni og skoraði glæsilegt mark í 5-0 sigri á Bodö/Glimt í Meistaradeild Evrópu.
Þýski boltinn Kanada Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira