Viðskipti innlent

Bein út­sending: At­vinnu- og fram­kvæmdaþing Reykja­nes­bæjar

Atli Ísleifsson skrifar
Fundurinn hefst klukkan 14.
Fundurinn hefst klukkan 14. Vísir/Vilhelm

Reykjanesbær stendur fyrir atvinnu- og framkvæmdaþing þar sem sjónum verður beint að atvinnulífi, uppbyggingu og þeim fjölmörgu tækifærum sem eru í sveitarfélaginu. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Á fundinum verður meðal annars rætt um atvinnulíf, uppbyggingu og tækifæri í Reykjanesbæ.

Hægt að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Útsending hefst klukkan 14.

Fundarstjóri: Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskiptastjóri HS Veitna


14:0014:10

Setning þings

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, setur þingið.


14:10–14:30

Atvinnulíf, uppbygging og tækifæri í Reykjanesbæ

Halldór Karl Hermansson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, og Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs.

Farið verður yfir atvinnulíf Reykjanesbæjar í tölum, framtíðartækifæri, laust byggingarland, nýjar atvinnulóðir, komandi framkvæmdir og helstu uppbyggingarsvæði sveitarfélagsins.


14:30–15:15

Uppbygging í Reykjanesbæ

Örerindi frá fyrirtækjum um framkvæmdir, uppbyggingaráform og umsvif næstu ára:

  • Samherji
  • HS Veitur
  • Hótel Keflavík
  • atNorth
  • Isavia

15:1515:30

Kaffihlé


15:30–16:20

Pallborðsumræður atvinnulífsins

Fyrri hluti:

  • Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs
  • Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi
  • Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalíf

Seinni Hluti:

  • Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne
  • Magnús Þorsteinsson, forstjóri BLUE
  • Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Fagkaupa
  • Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjanes Investment

16:20–16:30

Undirritun viljayfirlýsingar

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, undirrita viljayfirlýsingu.


16:30–16:40

Erindi frá SAR

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi fara yfir atvinnumál á svæðinu.


16:40–16:45

Lokaorð

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, slítur þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×