Eiginkona og sonur vitni að grófri árás sjö stuðningsmanna FCK Sindri Sverrisson skrifar 16. september 2026 14:16 Stuðningsmenn FCK eiga það til að fara yfir strikið. Myndin tengist fréttinni með óbeinum hætti. Getty/Kristian Tuxen Sjö stuðningsmenn danska knattspyrnufélagsins FC Kaupmannahöfn hafa allir verið dæmdir til fangavistar eftir grófa líkamsárás á formann stuðningsmanna Bröndby. Eiginkona og ellefu ára sonur fórnarlambsins urðu vitni að árásinni.
Fjórir mannanna hlutu sex mánaða fangelsisdóm, tveir hlutu níu mánaða dóm vegna fyrri dóma, og einn hlaut fjórtán mánaða dóm eftir að hafa áður verið dæmdur fyrir sölu á kókaíni. Dómara þótti ekki tilefni til þess að gera dómana skilorðsbundna og því þurfa mennirnir allir að sitja þá af sér á bakvið lás og slá. Verjendur íhuga nú að áfrýja dómunum. Fórnarlambið hafði verið að styðja Bröndby í 3-3 jafntefli við AGF síðasta haust en þegar hann steig út úr bílnum við heimili sitt, á sunnudagskvöldi, réðust mennirnir sjö á hann. Þorir ekki út eftir árásina Þeir kýldu og spörkuðu í manninn á bílastæðinu, og stöppuðu á honum, þar til að hann varð meðvitundarlaus, en flúðu svo þegar eiginkona hans hringdi á lögreglu. Maðurinn, sem er 42 ára gamall, hlaut áverka á höfði og hefur lýst því að hann óttist nú að fara út fyrir hússins dyr, og hafi ekki getað haldið áfram rekstri pípulagningarfyrirtækis síns. Hann mun hafa átt sér fortíð í helsta fótboltabulluhópi Bröndby, hópi sem Íslendingar kynntust þegar Bröndby sótti Víking heim í fyrrasumar, en slitið sig frá þeim félagsskap. Sem formaður stuðningsmanna Bröndby hefur maðurinn verið tengiliður við félagið sem og við lögreglu. Mikill fjandskapur hefur ætíð ríkt á milli Bröndby og FCK. Liðin mætast á heimavelli Bröndby á sunnudaginn í mikilvægum leik í toppbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar. Viktor Bjarki Daðason og Rúnar Alex Rúnarsson eru leikmenn aðalliðs FCK.
Danski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira