Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 20:23 Skipið var um 135 sjómílum frá Vík. Vísir/Viktor Freyr Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna skipverja sem slasaðist á fæti en skipið var töluvert út fyrir strendur Íslands. Fjöldi útkalla hefur borist af sjó úti síðustu daga, svo mörg að það telst heldur óvanalegt. „
Það var maður um borð í erlendu flutningaskipi sem slasaðist á fæti og skipstjórinn hafði samband við varðstjóra stjórnstöðvarinnar,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Þyrlusveitin var kölluð út á fimmta tímanum en skipið var um 135 sjómílur suð-suðvestur af Vík. Maðurinn var hífður upp í þyrluna og farið var með hann á sjúkrahús. Þetta er þriðji dagurinn í röð þar sem þyrlusveitin fer í útkall langt úti á hafi vegna veikinda eða meiðsla á skipum. Í gær veiktist skipverji í norsku línuveiðiskipi og fóru báðar þyrlurnar af stað. Daginn áður var veikur maður sóttur í erlent þjónustuskip sem var um 200 sjómílur frá landi. Ásgeir segist ekki muna eftir viku þar sem svo mörg útköll komu upp svo langt í burtu en öll útköllin hafi gengið mjög vel. „Það er tilviljun að þetta ráðist svona og í öll þessi skipti hefur þetta gengið ljómandi vel. Það er mikið skipulag í kringum svona flug og mikið sem mæðir á varðstjórum sem þurfa að samhæfa aðgerðir,“ segir hann. Alla jafna dreifast slík útköll yfir árið og eru sjóútköll venjulega um 25 til 30 prósent af öllum útköllum yfir árið. Hins vegar séu þau ekki endilega eins langt í burtu og þessi.
Landhelgisgæslan Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira