Undirbúa risasölu á helmingshlut í HS Orku fyrir tugi milljarða
Breskur innviðasjóður hefur ákveðið að hefja undirbúning að mögulegri sölu á öllum helmingshlut sínum í HS Orku, þriðja stærsta raforkuframleiðanda Íslands, en verði af henni er ljóst að um yrði að ræða risastór viðskipti upp á tugi milljarða. Íslenskir lífeyrissjóðir eiga eftirstandandi hlut í orkufyrirtækinu og þurfa að setja sig í stellingar hvort þeir muni vilja nýta sér forkaupsrétt sinn.
Tengdar fréttir
Lífeyrissjóðir eignast helmingshlut í HS Orku
Jarðvarmi slhf, félag 14 lífeyrissjóða, hefur ákveðið að nýta forkaupsrétt sinn í HS Orku á tæplega 54 prósenta hlut kanadíska orkufyrirtækisins Innergex í HS Orku
Lífeyrissjóðir bæta við sig um 13 prósenta hlut í HS Orku
Jarðvarmi hefur keypt hlut fagfjárfestasjóðsins ORK fyrir um 8,5 milljarða. Á um 46 prósent eftir kaupin.