Sport

Mahomes snéri aftur með látum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Patrick Mahomes fagnar í leiknum í nótt.
Patrick Mahomes fagnar í leiknum í nótt. vísir/getty

Kansas City Chiefs hnyklaði vöðvana í fyrsta leik vetrarins í NFL-deildinni er liðið pakkaði Denver Broncos saman, 31-10.

Leikstjórnandi Chiefs, Patrick Mahomes, snéri aftur á völlinn í gær. Sléttum níu mánuðum eftir að hann meiddist illa. Mahomes spilaði nokkuð vel þó svo hann væri eðlileg aðeins ryðgaður.

Mahomes kastaði boltanum 184 jarda og þar af tveimur boltum fyrir snertimörkum. Hann kastaði boltanum einu sinni frá sér. Hann hljóp líka einu sinni með boltann í markið.

Stjarna leiksins var þó nýi hlaupari liðsins, Kenneth Walker III. Sá var valinn verðmætasti leikmaður í síðasta Super Bowl er hann spilaði fyrir meistara Seattle Seahawks. Hann uppskar með því að fá stóran samning hjá Chiefs.

Walker hljóp 173 jarda með boltann og skoraði eitt snertimark. Persónulegt met hjá honum og lofar heldur betur góðu fyrir framhaldið.

Travis Kelce átti einnig ljómandi fínan leik. Greip þrjá bolta fyrir 71 jard. Hann komst líka í annað sætið yfir þá innherja sem hafa náð flestum jördum á ferlinum.

Frammistaða Broncos olli miklum vonbrigðum. Liðið var nálægt því að fara í Super Bowl í fyrra og væntingarnir miklar í ár. Liðið komst aldrei í gang og allra síst leikstjórnandi liðsins, Bo Nix.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×