Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar 11. september 2026 06:32 Undir stjórn Fidel Castro var lögð gríðarleg áhersla á að mennta lækna á Kúbu og fá lönd höfðu hlutfallslega fleiri lækna. Laun þeirra voru þó afskaplega lág í alþjóðlegum samanburði. Hugmyndafræðin hjá stjórn Castro var sú að í stað umbunar í formi launa átti ávinningurinn að felast í tækifærinu til að fá að menntast, virðingu samfélagsins og gleðinni yfir að fá að þjóna almenningi. Raunveruleikinn varð þó sá að margir nýttu hvert tækifæri til að stinga af fyrir betri kjör og tækifæri erlendis. Endurómur þessarar hugmyndafræði heyrist stundum hér á landi og má þá skilja að það séu svo mikil lífsgæði að fá yfir höfuð að sækja háskóla að það eitt og sér sé nægileg umbun. Það sé argasta frekja og skortur á samkennd með öðrum að telja sig eiga rétt á að njóta þess í launaumslaginu. Í sumum háskólagreinum duga ævitekjurnar ekki til að vinna upp tekjutapið sem verður meðan á námi stendur. Í öðrum er arðsemin jákvæð en lítil, og hefur farið hratt minnkandi. Nýleg rannsókn Hagfræðistofnunar sýnir að arðsemi bæði grunnnáms og meistaranáms háskóla hefur helmingast frá fjármálakreppunni og er nú með því minnsta sem þekkist. Hlutfall ungs fólks með háskólamenntun hér á landi er undir meðaltali OECD og staðan er sérstaklega slæm hjá ungum körlum. OECD hefur ítrekað bent á að aukin menntun stuðli að meiri framleiðni, meiri nýsköpun, hraðari tæknivæðingu og sterkari hagvexti til lengri tíma. Þegar einstaklingar sjá ekki lengur fjárhagslegan ávinning af menntun fækkar þeim sem leggja langskólanám fyrir sig. Þá verður skortur á sérfræðingum, framleiðni minnkar og samkeppnishæfni þjóðarinnar veikist. Þegar launalegur ávinningur af menntun er orðinn svo lítill að það tekur áratugi eða jafnvel starfsævina á enda að jafna stöðuna er háskólanám ekki lengur fjárfesting heldur fjárhagsleg áhætta. Þessi þróun sendir þau skilaboð að sérþekking sé ekki lengur verðmæt. Slíkt hefur afleiðingar til lengri og skemmri tíma. Fórnarkostnaðurinn við háskólanám felst ekki aðeins í skólagjöldum, bókakostnaði, dýrum námslánum eða hættunni á að festast á húsaleigumarkaði. Á meðan á námi stendur eru nemar almennt ekki í fullri virkni á vinnumarkaði og því launalausir eða launalitlir á sama tíma og þeir dragast aftur úr í söfnun lífeyris og annarra réttinda. Á húsnæðismarkaði er þeim einnig refsað þar sem ungt fólk sem lokið hefur háskólanámi hefur sjaldnast komið sér upp eigin húsnæði eða safnað fyrir útborgun, að ógleymdu greiðslumatinu sem erfitt getur verið að standast. Einstaklingur sem fer beint til starfa á unga aldri getur verið búinn að afla sér mikilla tekna, greiða í lífeyrissjóð, safna í útborgun fyrir húsnæði og byggja upp starfsreynslu þegar jafnaldri hans útskrifast úr háskólanámi. Sá síðarnefndi byrjar feril sinn mörgum árum á eftir og þarf að treysta á hærri laun til að vinna upp þetta forskot. Þetta hefur áhrif á ákvarðanir ungs fólks. Þau sem standa frammi fyrir vali á milli þess að fara strax út á vinnumarkaðinn eða verja mörgum árum í háskóla leggja ekki eingöngu á vogarskálina áhuga sinn á að afla sér menntunar. Þau meta einnig fórnarkostnaðinn og horfa á framtíð sína, tekjur, möguleikana á að koma sér þaki yfir höfuðið og þar fram eftir götunum. Ef þau sjá fram á lítinn launamun fyrir og eftir útskrift verður sífellt erfiðara að réttlæta námið. Kúbverska leiðin sýnir hvert það getur leitt þegar menntun er lofuð í orði en vanmetin í reynd. Fólkið leitar þangað sem menntun þess er metin að verðleikum og samfélagið sem kostaði menntunina situr eftir með reikninginn. Ísland hefur ekki efni á því. Menntun er ekki munaður sem útskrifað fólk á að vera þakklátt fyrir að hafa fengið að njóta. Hún er fjárfesting í framtíð þjóðarinnar. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun