Íslenski boltinn

„Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guð­jóns“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þjálfari HK. Hann ætlar með liðið á Laugardalsvöllinn.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þjálfari HK. Hann ætlar með liðið á Laugardalsvöllinn.

Umspilið um laust sæti í Bestu-deild karla hefst í dag og í kvöld. Njarðvík tekur á móti Þrótturum klukkan fimm í dag. Njarðvík hafnaði í fimmta sæti deildarinnar en Þróttur í 2. sæti.

Það lið sem vinnur einvígið samanlagt fer beint í hreinan úrslitaleik á Laugardalsvelli um laust sæti í Bestu-deildinni.

HK tekur síðan einnig á móti Fylki klukkan 19:15 í Kórnum í kvöld. Fylkir endaði deildina í 3. sæti en HK í því fjórða. HK-ingar hafa verið verulega sterkir í Kórnum að undanförnu og tapast ekki margir leikir þar.

„Við erum búnir að vera sterkir á heimavelli. Við gerðum eitt jafntefli og unnum alla hina í deildinni og vorum náttúrulega að vinna Fylki fyrir fjórum dögum síðan á þessum velli og þetta er nú smá svona skrítið að vera að fara aftur í að spila á móti þeim og aftur í Kórnum,“ segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Óstöðug byrjun

Miðað við úrslit HK í sumar þá telur Gunnar mikilvægt að vinna leikinn í kvöld.

„Miðað við hvernig þetta er búið að vera hjá okkur í sumar, svona rokkandi, vinna heima og tapa úti, þá yrði það betra. En við erum búnir að læra rosalega margt á þessu tímabili. Við náttúrulega byrjuðum frekar óstöðugir en okkur finnst við vera komnir á mun betri stað núna heldur en í byrjun tímabils þannig að ég á nú ekki von á öðru en bara virkilega góðu HK-liði bæði núna í leiknum í kvöld, í Kórnum og svo í Árbænum á sunnudaginn.“

HK hefur unnið báða leikina við Fylki á tímabilinu. Er Gunnar Heiðar með ákveðið tak á Heimi Guðjónssyni þjálfara Fylkis?

„Ég held það sé nú enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns. Við erum búnir að vinna báða leikina heima og heiman svo sem og vitum alveg hvernig Fylkir er að spila og þeir náttúrulega vita líka alveg hvernig við erum að spila. Þetta er bara oft spurning í svona leikjum, þessi litlu atriði að þau detti með þér eða á móti þér, stöngin inn eða stöngin út. Við verðum að vera mjög einbeittir allan tímann. Þetta er auðvitað tveggja leikja viðureign og við þurfum að halda okkur einbeittum í þessum báðum leikjum til að komast á Laugardalsvöllinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×