Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar 8. september 2026 09:31 Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar, sem haldinn er 8. september ár hvert, er ástæða til að staldra við og spyrja hvernig heilbrigðiskerfi við viljum byggja upp. Er kerfið okkar í stakk búið til að veita fullnægjandi þjónustu þegar fólk veikist skyndilega, en jafnframt að sinna forvarnarhlutverki sínu með því að tryggja aðgengi áður en vandi og einkenni verða hamlandi fyrir getu fólks og þátttöku? Sjúkraþjálfun er ein af grunnstoðum heilbrigðiskerfisins, og eru sjúkraþjálfarar ein fjölmennasta starfsstétt landsins á sviði endurhæfingar og gegna þar lykilhlutverki við að efla færni, sjálfstæði og lífsgæði fólks. Áherslur alþjóðlega dagsins nú 2026 beinast að hjarta- og æðasjúkdómum, heilablóðföllum og langvinnum sjúkdómum. Þetta eru meðal stærstu lýðheilsuáskorana samtímans og kalla á heilbrigðiskerfi sem grípur fyrr inn í, styður við forvarnir og tryggir gott aðgengi að þjónustu, fræðslu og sértækri þjálfun fyrir fólk á öllum stigum. Þegar fólk fær rétta þjónustu á réttum tíma má draga verulega úr veikindafjarvistum, færniskerðingu, óþarfa þjáningu og þörf fyrir dýrari úrræði síðar. Þetta á ekki síst við þegar um er að ræða langvinna sjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma og afleiðingar heilablóðfalla, þar sem markviss sjúkraþjálfun skiptir sköpum fyrir bata, virkni og lífsgæði. Þess vegna þarf að tryggja öflugt aðgengi að sjúkraþjálfun á öllum stigum heilbrigðiskerfisins , allt frá forvörnum og snemmtækri íhlutun til meðferðar, endurhæfingar og langtímastuðnings fyrir fólk með langvinna sjúkdóma. Kostnaður má ekki verða til þess að fólk fresti meðferð eða leiti sér ekki aðstoðar. Þegar það gerist greiðir samfélagið hærra verð síðar með versnandi heilsu, minni virkni, auknum veikindafjarvistum og meiri þrýstingi á heilbrigðiskerfið. Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar eru skilaboðin okkar skýr: Ef við viljum heilbrigðiskerfi sem stenst álag framtíðarinnar verðum við að fjárfesta markvisst í þjónustu sem heldur fólki virku, dregur úr sjúkdómsbyrði og bætir lífsgæði. Við eigum ekki að bíða þar til vandinn verður meiri. Við eigum að fjárfesta í heilsu – núna. Til hamingju með daginn sjúkraþjálfarar Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar, sem haldinn er 8. september ár hvert, er ástæða til að staldra við og spyrja hvernig heilbrigðiskerfi við viljum byggja upp. Er kerfið okkar í stakk búið til að veita fullnægjandi þjónustu þegar fólk veikist skyndilega, en jafnframt að sinna forvarnarhlutverki sínu með því að tryggja aðgengi áður en vandi og einkenni verða hamlandi fyrir getu fólks og þátttöku? Sjúkraþjálfun er ein af grunnstoðum heilbrigðiskerfisins, og eru sjúkraþjálfarar ein fjölmennasta starfsstétt landsins á sviði endurhæfingar og gegna þar lykilhlutverki við að efla færni, sjálfstæði og lífsgæði fólks. Áherslur alþjóðlega dagsins nú 2026 beinast að hjarta- og æðasjúkdómum, heilablóðföllum og langvinnum sjúkdómum. Þetta eru meðal stærstu lýðheilsuáskorana samtímans og kalla á heilbrigðiskerfi sem grípur fyrr inn í, styður við forvarnir og tryggir gott aðgengi að þjónustu, fræðslu og sértækri þjálfun fyrir fólk á öllum stigum. Þegar fólk fær rétta þjónustu á réttum tíma má draga verulega úr veikindafjarvistum, færniskerðingu, óþarfa þjáningu og þörf fyrir dýrari úrræði síðar. Þetta á ekki síst við þegar um er að ræða langvinna sjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma og afleiðingar heilablóðfalla, þar sem markviss sjúkraþjálfun skiptir sköpum fyrir bata, virkni og lífsgæði. Þess vegna þarf að tryggja öflugt aðgengi að sjúkraþjálfun á öllum stigum heilbrigðiskerfisins , allt frá forvörnum og snemmtækri íhlutun til meðferðar, endurhæfingar og langtímastuðnings fyrir fólk með langvinna sjúkdóma. Kostnaður má ekki verða til þess að fólk fresti meðferð eða leiti sér ekki aðstoðar. Þegar það gerist greiðir samfélagið hærra verð síðar með versnandi heilsu, minni virkni, auknum veikindafjarvistum og meiri þrýstingi á heilbrigðiskerfið. Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar eru skilaboðin okkar skýr: Ef við viljum heilbrigðiskerfi sem stenst álag framtíðarinnar verðum við að fjárfesta markvisst í þjónustu sem heldur fólki virku, dregur úr sjúkdómsbyrði og bætir lífsgæði. Við eigum ekki að bíða þar til vandinn verður meiri. Við eigum að fjárfesta í heilsu – núna. Til hamingju með daginn sjúkraþjálfarar Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun