Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Agnar Már Másson skrifar 7. september 2026 20:12 Þorgerður Katrín brýndi fyrir Long að færslan væri „með öllu óviðeigandi“. Samsett Mynd Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna, á sinn fund í dag. Hún er sögð hafa brýnt fyrir Long að færsla Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sýndi kort þar sem Ísland, Grænland og gervöll Norður-Ameríka voru máluð í bandarísku fánalitunum, væri „með öllu óviðeigandi“. „
Utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund í kjölfar þess að forseti Bandaríkjanna birti í dag þá samfélagsmiðlafærslu sem vísað er til. Þar var komið skýrt á framfæri þeirri afstöðu að færslan væri með öllu óviðeigandi,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í dag gervigreindarkort á Truth Social þar sem gervöll Norður-Ameríka auk Grænlands og Íslands er lögð undir bandarísku fánalitina. Færsla Trumps.Skjaskot/Truth Forsetinn skrifaði engan texta með færslunni en Trump-liðar hafa áður birt sambærileg kort af Grænlandi enda hefur Trump ítrekað lýst því yfir að hann vilji leggja undir sig Grænland. Hann lét þau ummæli falla nýlega að eyjan myndi vera orðin hluti af Bandaríkjunum í janúar 2029. Trump hefur aftur á móti ekki lýst beinum áhuga á að leggja undir sig Íslandi, þó að hann hafi í ræðu í byrjun árs ítrekað vísað til Grænlands sem Íslands. Þá var greint frá því í janúar að Billy Long, nýr sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík, hefði grínast með það að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna – væntanlega á eftir Grænlandi – en hann baðst síðan afsökunar á því. Tilefni færslunnar er óskýrt en hún birtist á meðan Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er í opinberri heimsókn á Grænlandi þar sem hún tilkynnti um nýjan fjárfestingapakka fyrir landið. Trump hefur í dag einnig birt fjölda korta af bandaríska ríkinu Nýja-Mexíkó, nema þar sem það er nefnt „Nýja-Ameríka“. Þessa mynd af Billy Long sendiherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra birti bandariska sendiráðið í síðasta mánuði.Bandaríska sendiráðið Fréttin hefur verið uppfærð.
Donald Trump Bandaríkin Grænland Utanríkismál Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Þingmaður Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis vill ekki lesa of mikið í færslu Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland, Grænland og alla Norður-Ameríku þakta bandarísku fánalitunum. Ekki sé tilefni fyrir nefndina að krefja Bandaríkin svara. Engu að síður vonar hún að fleiri slíkar færslur birtist ekki. 7. september 2026 17:42 Ísland á Ameríkukorti Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti birti mynd af korti á samfélagsmiðlum þar sem Ísland, auk Grænlands og allrar Norður-Ameríku, er þakið fánalitum Bandaríkjanna. 7. september 2026 16:02 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira
„Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Þingmaður Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis vill ekki lesa of mikið í færslu Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland, Grænland og alla Norður-Ameríku þakta bandarísku fánalitunum. Ekki sé tilefni fyrir nefndina að krefja Bandaríkin svara. Engu að síður vonar hún að fleiri slíkar færslur birtist ekki. 7. september 2026 17:42
Ísland á Ameríkukorti Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti birti mynd af korti á samfélagsmiðlum þar sem Ísland, auk Grænlands og allrar Norður-Ameríku, er þakið fánalitum Bandaríkjanna. 7. september 2026 16:02