Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar 4. september 2026 08:46 Tilefni þessar skrifa er nýleg umfjöllun Innherja Vísis, þar sem Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Langasjávar beinir því til stjórnvalda með ábúðamiklum hætti að horfa þurfi meira til framboðshliðar markaðarins, í umræðu um verðmyndun, fjármálastöðugleika, samkeppni stöðu fyrirtækja. Í þessari umræðu er ekki hægt að stökkva yfir þá staðreynd að umræddur framkvæmdastjóri er stjórnarformaður hagnaðardrifna leigufélagsins Ölmu. Hækkun á leiguverði hefur haft veruleg og bein drifandi áhrif á hækkun verðbólgu á síðustu árum og Alma hefur síður en svo verið eftirbátur annarra við að þrýsta verðinu upp. Í harðri samkeppni við eigin fyrirtæki? Það sem vakti sérstaka athygli mína var hvernig Gunnar Þór var kynntur til sögunnar í umfjöllun Visis. „Gunnar Þór Gíslason er framkvæmdastjóri Langasjávar en fjárfestingafélagið er meðal annars ráðandi hluthafi í Eik ásamt því að vera stór fjárfestir í Heimum og Reitum.“ Öll fyrirtækin eru stórtæk fasteignafyrirtæki. Ef eigandi t.d. Bónuss stigi fram opinberlega og beindi sjónarmiðum til stjórnvalda og Seðlabankans um verðmyndun og framboð á dagvörumarkaði, en undir myndinni af honum stæði jafnframt að sami fjárfestir væri stór hluthafi í t.d. Krónunni og Nettó þá er næsta víst að slíkt myndi strax vekja spurningar um sameiginlegt eignarhald, samþjöppun og raunverulega samkeppni á markaðnum. Þarna birtist í einni setningu álitaefni sem Samkeppniseftirlitið hefur fjallað sérstaklega um: sameiginlegt eignarhald og eignatengsl milli stærstu keppinauta á markaði fyrir útleigu atvinnuhúsnæðis. Í riti nr. 6/2024, kafla 7, fjallar Samkeppniseftirlitið sérstaklega um sameiginlegt eignarhald í Eik, Heimum og Reitum og segir það mikið, sérstaklega á milli þessara þriggja stærstu fasteignafélaga. Það getur hver séð það í hendi sér að aðili sem fer með veglegan hlut í viðkomandi félögum hefur ekki mikinn hag af því að þau standi í samkeppni hvert við annað. Samkeppnisyfirvöld hafa um árabil bent á að sameiginlegt eignarhald keppinauta getur haft áhrif á samkeppnishvata. Augljóst er að slík tengsl draga úr hvata fyrirtækja til að keppa sín á milli, aukið hættu á samhæfingu og við ákveðnar aðstæður skapað aðgangshindranir. Nú er ég ekki ósammála þeim boðskap að horfa eigi til framboðs á húsnæði þegar hár fjármagnskostnaður þrengir að húsbyggingum en fyrir stjórnvöld og almenning skiptir ekki síður máli að horfa á samkeppnishliðina m.a. við útleigu á atvinnuhúsnæði. Ég tel því mikilvægt, þegar rætt er um framboðshlið hagkerfisins, verðbólgu, fjárfestingu og stöðu fyrirtækja, að horft sé ekki aðeins til þess hversu mikið húsnæði er byggt heldur einnig til þess hverjir eiga húsnæðið, hversu samþjappað eignarhaldið er og hvaða sameiginlegu eignatengsl eru á milli stærstu fyrirtækjanna á markaðnum. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar