Sport

Tiger tekur U-beygju

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger Woods hefur gengið í gegnum ýmislegt.
Tiger Woods hefur gengið í gegnum ýmislegt. Adam Glanzman/Getty Images

Það eru fimm mánuðir síðan Tiger Woods velti jeppanum sínum og var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum.

Við handtökuna var Tiger beðinn um að blása og stóðst það próf. Hann hafnaði aftur á móti að fara í frekari rannsóknir til að athuga hvort hann væri lyfjaður.

Við fyrirtöku málsins sagðist Tiger ekki vera sekur og sagðist þess utan vera á leið í meðferð vegna slyssins.

Nú er Tiger sagður hafa tekið U-beygju í málinu og vilji breyta afstöðu sinni. Hvernig nákvæmlega hefur ekki komið fram.

Það meiddist enginn er hann velti jeppanum. Tiger sagði við lögreglumenn á staðnum að hann tæki lyfseðilsskyld lyf en hefði ekki drukkið áfengi. Kylfingurinn hefur þurft að gangast undir margar aðgerðir og hefur lengi verið að glíma við mikla verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×