Markaðurinn að vanmeta svigrúm Arion til útgreiðslna til hluthafa
Arion banki ætti að geta skilað hluthöfum sínum um tólf til fjórtán prósenta árlegri heildarávöxtun til næstu þriggja ára, einkum í formi arðgreiðslna og endurkaupa eigin bréfa, að mati greinenda norræns fjárfestingabanka sem telur bréf Arion vera talsvert undirverðlögð á markaði. Fjárfestar eru sagðir vanmeta svigrúmið sem Arion hefur til útgreiðslna.
Tengdar fréttir
Arion verðlagður á „spottprís“ þrátt fyrir sambærilega arðsemi og norrænir bankar
Þrátt fyrir að skila sambærilegri arðsemi og aðrir helstu bankar á hinum Norðurlöndunum þá er Arion verðlagður á markaði talsvert lægra með hliðsjón af afkomu og eigið fé. Í nýrri hlutabréfagreiningu er Arion því sagður vera „á spottprís“ en verðmat á bankanum er lækkað lítillega og gert er ráð fyrir minni efnahagsumsvifum samtímis háum grunnvöxtum.
Afkoma Arion á pari við spár þrátt fyrir óvenjumikla virðisrýrnun lána
Kjarnatekjur Arion á fjórða ársfjórðungi, sem voru að mestu á pari við væntingar, héldu áfram að aukast og var arðsemi bankans fyrir árið í heild sinni talsvert yfir markmiði stjórnenda. Óreglulegir liðir lituðu uppgjörið að hluta en bankinn bókfærði meðal annars umtalsvert meiri virðisrýrnun á lánsafnið sitt en búist var við.