Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar 1. september 2026 07:01 John Ratcliffe, forstjóri CIA flaug frá Riga til Moskvu þriðjudaginn 25. ágúst s.l. með bandarískri herflutningavél. Að sögn átti hann fund með Sergei Naryshkin sem gegnir svipaðri stöðu fyrir Rússland. Tilgangur ferðarinnar er óljós, en síðast þegar svipaður fundur átti sér stað í desember 2021 var tilgangurinn að vara Rússa við innrás í Úkraínu, sem þeir virtu að vettugi. Ljóst er að þessi ferð er óvenjuleg og vekur upp spurningar hver tilgangur hennar var. Það eru þrjár kenningar sem geta varpað ljósi á málið. Sú fyrsta er að forstjóri CIA hafi borið þau skilaboð til Rússa að innrásarstríð þeirra í Úkraínu sé ekki að bera þann árangur sem þeir hafi vonast eftir og að tæplega fimm ára stríð þeirra óvinnanlegt. Á þeim grundvelli séu Bandaríkjamenn tilbúnir til að efna til afvopnunarviðræðna með aðkomu forseta þessara þriggja landa. Trump forseti Bandaríkjanna hefur ítrekað lýst því yfir að hann einn geti komið á friði í þessu stríði. Úkraínumenn eru vantrúaðir á vilja Rússa til samninga og benda á upplýsingar sem þeir telja trúverðugar um herútkall allt að 500 þúsund manns sem Pútín forseti Rússlands muni tilkynna fyrir áramót. Á sama tíma segja þeir undirbúning í Rússlandi fyrir móttöku allt að 30 þúsund hermönnum frá Norður-Kóreu vera á lokastigum. Enn fremur óttast þeir frekari árásir Rússa úr norðri. Með öðrum orðum að þá er ekkert sem bendir til þess að Pútin forseti Rússlands vilji gefa stríðsmarkmið sín gagnvart Úkraínu upp á bátinn, og spyrja má af hverju slík skilaboð til Rússa koma ekki frá utanríkisráðherra Bandaríkjanna fremur en forstjóra CIA. Önnur kenningin og sú trúverðugri er að Ratcliffe hafi varað Rússa við ögra Atlantshafsbandalaginu, t.d. með árás á eitt eða fleiri aðildarríki og er þá Litháen helst nefnt á nafn. Landleiðin frá Hvíta-Rússlandi til Kalíngrad liggur yfir Litháen og er tæplega 100 km löng. Rússneskar lestarferðir yfir hið svokallað Suwalki-hlið til Kalíngrad er háð ströngu eftirliti litháa og er eitthvað sem Rússar eiga erfit með að sætta sig við. Þessi kenning grundvallast á þeirri forsendu að Trump forseti muni ekki koma aðildarþjóðum NATO til varnar ef á reynir og að hernaðarleg staða Bandaríkjanna sé veikari nú en áður vegna stríðsátaka við Íran og skort á langdrægum vopnum. Nú sé tækifæri og opinn gluggi til að styrkja hernaðarlega stöðu Rússlands við Eystrasaltið komi til frekari átaka við NATO. Og þriðja kenningin er sú að Rússar telja sig vera í stríði við NATO og Evrópu vegna stuðnings þeirra við varnarstríð Úkraínu. Rússar hafa hótað bæði Bretum og Frökkum vegna sendinga þeirra á langdrægum eldflaugum til Úkraínu, þ.m.t. árásum á framleiðslufyrirtæki. Fjölþáttaógnir eru viðvarandi og vaxandi vandamál fyrir Vesturlönd sem endurspeglast í íkveikjum, drónafundum við hernaðarmannvirki, netárásum og morðum. Þessi kenning er trúverðug vegna þess að slík átök eru á gráu svæði sem bein hernaðarátök eru ekki. Hættan er sú að að þau geti þróast yfir í bein hernaðarátök með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir Evrópu og Rússland. Við þessu hafi Ratcliffe varað. Það á ef til vill eftir að koma í ljós hver raunverulegur tilgangur þessarar heimsóknar forstjóra CIA til Moskvu var, en fullvíst er að hún var óvenjuleg og ástæðan fyrir henni var svo alvarleg að ekki var hægt að gera annað en að ræða málið augliti til auglitis. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar