Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Bjarki Sigurðsson skrifar 28. ágúst 2026 11:35 Helgi Þorsteinsson Silva er lögmaður Paul Watson-samtakanna. Vísir/Bjarni Vélstjóra, sem átti að vera hluti af áhöfninni sem átti að sigla Bandero frá landi, var meinuð innganga í landið. Lögmaður segir ákvörðunina ekki standast neina skoðun. Endurupptökubeiðni á kyrrsetningu skipsins var vísað frá.
Bandero liggur kyrrsett við Akraneshöfn eftir úrskurð Sýslumannsins á Vesturlandi. Hvalur hf. krafðist kyrrsetningar vegna fjártjóns í kringum aðgerðir áhafnar Bandero. Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður Watson-samtakanna, sem eiga Bandero, lagði fram endurupptökubeiðni til sýslumanns sem var hafnað. Málið mun því fara fyrir Héraðsdóm Vesturlands á næstu mánuðum þó að vonast sé til að hægt verði að aflétta kyrrsetningunni fyrr og sigla skipinu af landi brott. „Allir úr áhöfninni nema einn eru farnir, þeim var brottvísað og flogið úr landi. Þá þarf að koma nýrri áhöfn til landsins. Það er kominn skipstjóri en í gær kom hingað til landsins vélstjóri sem á að vera um borð þegar skipið fer. Honum var meinuð landganga á flugvellinum á grundvelli þess að hann væri ekki með atvinnuleyfi. Okkur finnst það mjög sérstakt og höfum kært til kærunefndar útlendingamála,“ segir Helgi. Þurfi ekki atvinnuleyfi Það gætu liðið nokkrir mánuðir þar til kærunefndin tekur málið fyrir. „Sá sem kemur hingað til að sigla skipinu á brott er ekki að fara að vinna hér á landi. Þetta væri svipað og að krefja alla sem eru á skemmtiferðaskipum um atvinnuleyfi, þannig ég er nokkuð viss um að þetta standist ekki. En því miður heldur þessi ákvörðun þar til kærunefnd snýr henni við,“ segir Helgi. Er bjartsýnn Skipið ætti að fá haffærisskírteini á næstunni þegar pappírar berast frá Panama. Ertu bjartsýnn á að það verði hægt að sigla Bandero burt á næstunni? „Já, ég held að það sé fyrirséð að það verði fundin einhver leið til þess. Ef það er skoðað í því samhengi að skipið er margfalt meira virði en krafan sem liggur til grundvallar kyrrsetningunni tel ég augljóst að það sé hægt að finna leið til að opna þá kyrrsetningu. Hvort sem það er gert með dómi eða öðrum hætti,“ segir Helgi.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Akranes Hvalveiðar Dómsmál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira