Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. ágúst 2026 07:01 Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur ræddi málið meðal annars í Pallborðinu. Vísir/Ívar Fannar Það gæti orðið minni munur á milli Já og Nei þegar talið verður upp úr kjörkössunum á laugardaginn heldur en skoðanakannanir benda til núna, að mati stjórnmálafræðings. Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin verði hnífjöfn, svo jöfn að örfá atkvæði gætu skilið að. Dæmi frá Bretlandi og Bandaríkjunum sýni að fylgi annarrar hliðar geti verið vanmetin.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Pallborðinu á Vísi í gær. Stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann og stjórnmálasálfræðingurinn Hulda Þórisdóttir voru viðmælendur í fyrri hluta pallborðsins þar sem þau ræddu upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar í baráttunni. Í Pallborðinu voru þau Hulda og Eiríkur meðal annars spurð út í birtingu skoðanakannana svo stuttu fyrir kosningar. Umræða hefur reglulega átt sér stað um hvort slík birting geti haft áhrif á kosningahegðun fólks og segir Hulda ljóst að svo sé, dæmi um það hafi verið í forsetakosningunum 2024. „Þetta er náttúrulega bara eilífðar rökræða sem á að eiga, hversu miklar upplýsingar eiga kjósendur rétt á að hafa þegar þeir ganga inn í kjörklefann. Ég sem rannsakandi er sannarlega á þeirri skoðun að fólk hafi fullan rétt á að fá sem mestar upplýsingar og skoðanakannanir eigi rétt á sér. Ég held það sé líka bara ekki hægt að koma í veg fyrir þær, lönd sem hafa reynt að banna þær, þá eru þær bara gerðar í næstu löndum við hliðina á og birtar þar og allir vita hver staðan er í raun, ef við förum út í praktísku hliðina. Ég held eins og í þessu, þá er þetta náttúrulega bara hnífjafnt og þetta þá bara mótíverar báðar fylkingar jafn mikið myndi ég halda, þannig ég sé engan meinbug á því að við séum að birta skoðanakannanir svona nærri, bara ekki nokkurn.“ Eiríkur tekur undir með Huldu. Hann segir ástríðuna skipta máli. Ljóst sé að skoðanakannanir bendi til þess að þetta verði hnífjafnt á laugardag. „Þessar kannanir eru bara þannig að atkvæði hvers einasta og þetta pallborð getur bara ráðið úrslitum. Það er ekki oft þannig að við erum í þeirri stöðu að örfá atkvæði, það er bara að einhver hafi misst af strætó getur breytt úrslitunum.“ Dæmi frá Bretlandi og Bandaríkjunum um meiri mun Haldið þið að þetta verði hnífjafnt þegar talið verður upp úr kössunum? „Ég get í rauninni ekki sagt neitt annað en skoðanakannanir gefa til kynna, já það bendir til þess. En auðvitað erum við í samtímanum með fjölmörg dæmi bæði frá Bandaríkjunum og Bretlandi, sérstaklega í svona pólaríserandi umhverfi þar sem eru bara tveir í rauninni í framboði eða tvö mál sem verið er að kjósa um, þar sem skoðanakannanir vanmátu aðra hliðina stórkostlega,“ segir Hulda. Ekki megi mikið út af bregða á lokametrunum, hvort sem um er að ræða mæliskekkju eða breytingar á lokametrunum í fylgi. „En ég get ekki spáð öðru en að þetta verði bara hnífjafnt, ég veit ekki betur.“ Eiríkur, ert þú sammála því? „Kannski geri ég akkúrat ágreining hérna, í lokin, rökræðunnar vegna. Ekki spádómur en hugsun, það kæmi mér ekkert mjög á óvart ef munurinn yrði bara töluvert meiri heldur en skoðanakannanir sýndu, að það sé ýktari munur heldur en skoðanakannanir sýna en ég get bara ekki spáð í hvora áttina það er.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Pallborðið Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Sjá meira