Viðskipti erlent

Meta kaupir sig frá mála­ferlum vegna barnavelferðar

Kjartan Kjartansson skrifar
Mæður ungmenna sem sviptu sig lífi halda á myndum af börnum sínum fyrir utan dómshúsið í Oakland í Kaliforníu þar sem réttarhöld í máli Meta hófust í síðustu viku. Málinu er nú lokið með sátt.
Mæður ungmenna sem sviptu sig lífi halda á myndum af börnum sínum fyrir utan dómshúsið í Oakland í Kaliforníu þar sem réttarhöld í máli Meta hófust í síðustu viku. Málinu er nú lokið með sátt. AP/Noah Berger

Samfélagsmiðlarisinn Meta féllst á að greiða jafnvirði tvö þúsund milljarða íslenskra króna með sátt sem það gerði við flest ríki Bandaríkjanna í dag. Ríki höfðuðu mál gegn fyrirtækinu fyrir að gera ekki nóg til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif samfélagsmiðla þess á börn.

Auk sáttargreiðslunnar upp á sautján milljarða dollara samþykkti Meta að bæta öryggis barna á Facebook og Instagram, að sögn AP-fréttastofunnar. Fjörutíu og sjö ríki stóðu að málsókn gegn fyrirtækinu. Þau sökuðu fyrirtækið um að herja vísvitandi á börn þrátt fyrir að það spillti geðheilsu þeirra.

„Um árabil blekki Meta almenning vísvitandi um ávanabindandi og skaðlega hönnun sem hefur valdið glundroða í geðheilsu ungmenna,“ sagði Jay Jones, dómsmálaráðherra Virginíu þegar tilkynnt var um sáttina.

Meta var sagt hafa hannað samfélagsmiðla sína vísvitandi til þess að vera ávanabindandi fyrir börn. Fyrirtækið hafi ennfremur brotið lög með því að safna kerfisbundið gögnum um börn yngri en þrettán ára án samþykkis foreldra þeirra.

Réttarhöld í málinu hófust í Kaliforníu í síðustu viku og átti Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, að bera vitni í því. Sáttin bindur enda á dómsmálið.

Ólíklegt er að sáttargreiðslan verði sérlega íþyngjandi fyrir Meta. Hún er aðeins dropið í hafið miðað við tekjur félagsins upp á 201 milljarð dollara í fyrra.

Á meðal aðgerðanna sem stjórnendur Meta féllust á að hrinda í framkvæmd er að  setja hámarka á hversu lengi börn geta notað samfélagsmiðla á einum degi. Þá eiga bæði Facebook og Meta að hætta að senda tilkynningar úr forritinu á skólatímum og taka upp strangara eftirlit með aldri notenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×