Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar 26. ágúst 2026 10:01 Sú hugmynd hefur oft skotið upp kollinum síðustu daga og vikur að óvissa á alþjóðavettvangi eigi að hvetja Íslendinga til að leita skjóls í Evrópusambandinu. Það væri fljótfærnisleg og vond ástæða til að láta ráða atkvæði sínu komandi laugardag. Verði niðurstaðan já, þá felur það í sér að Ísland lýsir yfir vilja og áhuga á að ganga í Evrópusambandið. Það er ekki bara verið að „kíkja í pakkann“; þú tekur þér stöðu í röðinni og vilt komast inn. Það er alveg rétt, sem margir hafa bent á, að yfirlýsingar og aðgerðir Bandaríkjaforseta og meðreiðarsveina hans hafa grafið undan trausti á alþjóðakerfinu og sett það í uppnám. Núverandi stjórnvöld í Washington hafa enga trú á frjálsum viðskiptum milli þjóða, eins og sést hefur á framgöngu þeirra í tolla- og viðskiptamálum. Innan Repúblikanaflokksins eru áhrifamenn sem virðast telja að Bandaríkin geti farið sínu fram án bandamanna, án NATO. En þótt ekki verði horfið aftur til fyrri tíma er harka og yfirgangur núverandi stjórnvalda að öllum líkindum tímabundið ástand en ekki ástæða til skuldbindingar til áratuga. Trump er ekki fasti Við sem hér á norðurhjara sitjum ættum ekki að gera ráð fyrir að núverandi staða í Bandaríkjunum sé varanleg. Hin pólitíska staða vestra hefur sveiflast áður og mun sveiflast aftur. Fastinn í bandarískum stjórnmálum er sveiflur pendúlsins. Demókratar eru nú sigurstranglegir í fulltrúadeildinni og hafa styrkt stöðu sína í öldungadeildinni. Missi forsetinn aðra þingdeildina þrengir að honum og rannsóknarnefndir þingsins geta gert honum skráveifu. Missi hann báðar deildir getur honum orðið lítið úr verki síðustu tvö árin. Eftir rúm tvö ár fara síðan fram forseta- og þingkosningar. Donald Trump, á níræðisaldri, getur ekki boðið sig fram á ný án þess að láta reyna á 22. viðauka við stjórnarskrá Bandaríkjanna, sem takmarkar valdatíma forseta. Núverandi forseti er því tímabundin breyta í alþjóðakerfinu, ekki fasti. Það væri skammsýnt að láta viðbrögð við einum forseta ráða langtímaákvörðun um stöðu Íslands. Sagan sýnir okkur líka að þótt næsti forseti kæmi úr röðum repúblikana er ekkert sem segir að hann haldi sömu stefnu. Vandi Bandaríkjanna er dýpri Þetta þýðir ekki að óttinn um þróun Bandaríkjanna sé ástæðulaus. Sigrar Trumps í forsetakosningunum 2016 og 2024 eru birtingarmynd þjóðfélagsástands. Misskipting, vantraust á stofnunum og raunkjaraskerðing hafa grafið undan þeirri breiðu millistétt sem stöðugleiki landsins byggðist lengi á. Þar með er þó ekki sagt að Bandaríkin séu á heljarþröm. Grunnskipun þeirra byggist á lögum, rétti og sjálfstæðum stofnunum. Þótt reynt hafi á þær með hætti sem varla hefur sést í 80 ár halda þær enn. Ef þær láta undan í pólitískum hráskinnaleik framtíðarinnar, hvort sem þrýstingurinn kemur frá hægri eða vinstri, getur þróunin orðið hættuleg. Kröfur yst á vinstri væng demókrataflokksins um róttækar breytingar á dómstólum og öðrum stofnunum sýna að þrýstingurinn á bandaríska stjórnskipan kemur ekki aðeins úr einni átt. Bandaríkin geta því annaðhvort endurnýjað sig eða þróast í átt að meiri átökum, ofbeldi og stjórnlyndi. En það er ferli sem við munum fylgjast með á næstu árum og jafnvel áratugum. Vegur varðaður góðum ásetningi Þótt næstu ár geti valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum væri varhugavert að bregðast við óvissunni þar með því að binda Ísland fastar við efnahagssvæði og tollabandalag sem glímir við langvarandi stöðnun. Spurningin er ekki aðeins hvort Bandaríkin séu á leið inn í pólitískt hnignunarskeið. Evrópusambandið þarf að sýna að það geti snúið af braut hnignunar. Draghi-skýrslan um samkeppnishæfni Evrópu dró upp alvarlega mynd. Framleiðniaukning hefur verið lítil, orkuverð hátt, fjárfesting í nýsköpun ófullnægjandi og evrópsk fyrirtæki eiga erfitt með að vaxa á sambærilegan hátt og bandarísk fyrirtæki. Draghi varaði við því að án róttækra breytinga myndi Evrópa dragast enn frekar aftur úr Bandaríkjunum og Kína. Regluverk Evrópusambandsins er hluti af þessari umræðu. Reglurnar byggjast oft á skiljanlegum markmiðum um persónuvernd, umhverfisábyrgð og öryggi, en framkvæmd þeirra er íþyngjandi og alvarlegur dragbítur á nauðsynlegan vöxt. En vegurinn til heljar er varðaður góðum ásetningi. Fyrirtæki, ekki síst þau smærri, þurfa að bera verulegan kostnað vegna skráningar, upplýsingagjafar og lögfræðilegrar óvissu. Framkvæmd sumra reglnanna vinnur þannig gegn grunnmarkmiðum sambandsins: Reglur sem eiga að tryggja sanngirni draga í reynd úr samkeppni, torvelda nýsköpun og veikja efnahagslegan styrk. Ekki liggur fyrir hvort ESB hafi vilja eða getu til að einfalda regluverk og minnka byrðarnar. Flest bendir til annars. Ef og hefði, sá og mundi Því er stundum haldið fram að Ísland hafi ekki endilega val um að ganga í Evrópusambandið síðar. Alþjóðakerfið geti versnað, dyr lokast og staða fámenns, herlauss útflutningsríkis veikst. Það er ekki fugl í hendi heldur tveir í skógi. Ef og hefði, sá og mundi. Ákvarðanir verða ekki skynsamlegar eða góðar fyrir það eitt að óttast að ekki verði hægt að taka þær síðar. Ísland stendur heldur ekki eitt. Landið er stofnaðili að NATO, nýtur sameiginlegra varna bandalagsins og hefur tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. NATO er líka meira en bara Bandaríkin. Strategísk staðsetning Íslands gerir okkur ekki aðeins berskjölduð heldur einnig að mikilvægum bandamanni. Varnir Norður-Atlantshafsins eru því sameiginlegir hagsmunir Norður-Ameríku og Evrópu. Óvissuna ber að sjálfsögðu taka alvarlega, en hún segir okkur ekki sjálfkrafa hvaða niðurstöðu eigi að draga af henni. Það er ekki sjálfgefið að NATO lifi óbreytt eða að bandarísk stjórnvöld framtíðarinnar túlki skuldbindingar sínar með sama hætti og áður. Formlegur varnarsamningur er ekki fullnægjandi ef pólitískur vilji eða hernaðargeta brestur þegar á reynir. En ESB-aðild leysir þann vanda ekki sjálfkrafa. Varnir Evrópu byggjast enn að verulegu leyti á NATO, bandarískri hernaðargetu og herjum sömu Evrópuríkja og þyrftu að bregðast við innan ESB. Veikist NATO verður Evrópusambandið ekki fyrir það eitt fullbúið varnarbandalag. Það er nú um stundir ekki einu sinni sérstaklega vel heppnað efnahagsbandalag. Ísland þarf því að búa sig undir breytt NATO með því að styrkja eigin innviði og viðnámsþrótt, rækta norrænt og breskt varnarsamstarf og tryggja raunhæf tengsl við fleiri bandamenn beggja vegna Atlantshafsins. Spurningunni um ESB-aðild verður að svara á eigin forsendum en ekki af ótta við óvissa framtíðarþróun. Lótusæturnar Spurningin á laugardag er því ekki hvort okkur líki við eða óttumst Donald Trump. Ákvörðunina eigum við að taka út frá varanlegum íslenskum hagsmunum og horfa til þess hvernig okkur hefur farnast síðustu rúm 80 ár sem lýðveldi. Við eigum líka að horfa til þess að nánustu nágrannar okkar, Grænland, Færeyjar, Bretland og Noregur standa utan Evrópusambandsins. Donald Trump verður ekki forseti að eilífu. Ákvörðun um að fara í röðina til að komast inn á kaffibar ESB er til lengri tíma og hættan er að mun erfiðara reynist að snúa við en að ganga inn. Líklegast yrði að við blindumst af umhverfinu, missum áhugann á því að losna úr viðjum regluverksins og sökkvum með sambandinu hægt og örugglega í doða vel meinandi og þunglamalegs skrifræðis. Lifum eins og lótusætur Hómers. Skynsamlegast er að bíða og sjá hvernig bæði Bandaríkin og Evrópusambandið þróast á næstu árum og segja því nei, til að sjá - til. Það er ódýrasti og einfaldasti kosturinn í heimi á hreyfingu. Höfundur er varaborgarfulltrúi og áhugamaður um alþjóðastjórnmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Friðjón Friðjónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Sjá meira
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun