Innherji

Spá verð­mætari bylgju nýrra lyfja á markað hjá Al­vot­ech

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech. Hlutabréfaverð félagsins hækkaði um tuttugu prósent á markaði vestanhafs í dag.
Róbert Wessman, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech. Hlutabréfaverð félagsins hækkaði um tuttugu prósent á markaði vestanhafs í dag.

Alvotech er að nálgast „mikilvægan vendipunkt“ eftir margra ára uppbyggingu þar sem áhersla fjárfesta færist frá eftirlitsáhættu tengdri FDA yfir í markaðssetningu nýrra lyfja og tekjuvöxt, að sögn greinenda Bank of America, sem mæla með kaupum í frumskýrslu sinni um félagið. Hlutabréfaverð Alvotech rauk upp í dag en greinendur bandaríska bankans telja að næsta bylgja nýrra hliðstæðulyfja frá félaginu geti reynst verðmætari en þau sem hafa áður komið á markað.


Tengdar fréttir

Telja vand­ræði keppi­nautar styrkja stöðu Al­vot­ech á markaði með Simponi

Stjórnendur Alvotech telja félagið vel í stakk búið til að nýta sér þá stöðu sem komin er upp á markaði fyrir hliðstæður við gigtarlyfið Simponi í kjölfar vandræða kínverska keppinautarins Bio-Thera. Markaðshlutdeild hliðstæðulyfs Alvotech við Simponi er þegar komin yfir 15 prósent í Evrópu og félagið hefur byggt upp nægar birgðir til að mæta aukinni eftirspurn út árið og inn í 2027.

Bandarískur sjóður byggt upp um fimm pró­senta stöðu í kjölfar út­boðs Al­vot­ech

Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.

Vonast eftir aukinni veltu með inn­komu yfir þrjátíu nýrra er­lendra sjóða

Væntingar eru um að með innkomu meira en þrjátíu nýrra erlendra sjóða eftir nýlegt hlutafjárútboð Alvotech í Bandaríkjunum, margir með áherslu á líftæknigeirann, þá muni það auka veltu með bréfin og komnir séu að borðinu fjárfestar sem skilji betur verðmætin í lyfjapípu félagsins, að sögn Róberts Wessman. Hann fer hörðum orðum um regluverkið í kringum líftæknilyfjahliðstæður í Bandaríkjunum, sem er lakara borið saman við Evrópu, og segir að það geri stórum framleiðendum frumlyfja mögulegt að verja markaðshlutdeild sína mun lengur en eðlilegt megi teljast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×