Eðlilegt að hafa áhyggjur Smári Jökull Jónsson skrifar 24. ágúst 2026 19:40 Þórdís Jóna Sigurðardóttir er forstjóri Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu Vísir/Sigurjón/Vilhelm Lögð verður áhersla á að innleiða nýtt einkunnakerfi í grunnskólum landsins hratt, að sögn forstjóra Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu. Þá eigi eftir að koma í ljós hvort einkunnagjöf með tölustöfum í stað bókstafa muni skila því sem lagt sé upp með.
Menntamálaráðuneytið tilkynnti þann 7. ágúst að nemendur í 10. bekk verði útskrifaðir með tölueinkunn í vor í stað bókstafaeinkunnar. Ákvörðunin og ekki síst tímasetning hennar, rétt áður en skólaárið hefst, hefur hlotið töluverða gagnrýni úr hópi kennara og skólastjórnenda. Fyrstu fundir innleiðingateyma skólanna, MMS og ráðuneytisins fara fram þessa dagana og eru síðustu fundir áætlaðir 15. október, tæpum átta vikum eftir að skólastarf hefst. Klippa: Tilbúin í áskorun „Mér finnst eðlilegt að kennarar hafi áhyggjur því eðlilega vilja þeir gera þetta vel og vera faglegir í sínu mati þegar þeir skila af sér þessum lokaeinkunnum sem eiga að vera í 10. bekk. Við ætlum að reyna að gera þetta mjög hratt því það skiptir máli að koma þessu sem fyrst inn í skólana,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu. „Við verðum til þjónustu reiðubúin“ Hún segir að nú gefist tækifæri til að skoða betur hvað sé á bakvið hverja tölu og vægi þátta innan námsgreina svo samræmi verði á milli skóla. Þá tekur hún fram að ráðherra hafi ítrekað að verkefnið fái þann stuðning sem þarf til svo það verði farsælt. Nú voru skólar margir hverjir settir í morgun, er ekki bagalegt að nemendur og kennarar viti ekki alveg hvernig námsmati verður háttað þegar skólinn er að hefjast? „Það er áskorun, á sama tíma og að við erum tilbúin. Við erum búin að leggja töluvert á okkur til þess að innleiðingateymi hjá okkur sé tilbúið með skilaboðin, við verðum til þjónustu reiðubúin.“ Telur þú að þessi breyting að breyta úr bókstöfum yfir í tölustafi muni skila því sem gert er ráð fyrir? „Það á auðvitað eftir að koma í ljós. Við sjáum allavega tækifæri til að skerpa á ákveðnum þáttum sem við heyrum að kennarar eru alveg sammála um. Það sem hefur kannski verið óttinn í þessu er hraðinn, á sama tíma og við teljum okkur vera að mæta því.“
Grunnskólar Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira