Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ Agnar Már Másson skrifar 24. ágúst 2026 17:51 Hulda spyr hvort sumarfrí skólanna þurfi virkilega að vera tíu vikur. Hún segir skjátíma barna sinna hafa rýmkað allverulega í sumar og þau hafi borðað óhóflegt magn af núðlusúpu og grilluðum samlokum. samsett „Þetta rétt gekk,“ skrifar móðir í aðsendri grein á Vísi er hún lýsir þreytu eftir sumarfrí skólanna, þar sem foreldrar hafi átt í ströngu við að finna börnum sínum eitthvað að gera á daginn og keppst um pláss á sumarnámskeiðum. Eftir „skítamixsumarið mikla“ segir hún að skólabjallan hafi sjaldan hljómað eins undursamlega að hausti. Hún spyr hvort sumarfrí frá skólum þurfi virkilega að vera tíu og hálf vika enda sé það styttra í nágrannalöndum. „
Ég tel mig almennt vera ágætis foreldri. En í svona sjö vikur í sumar hefur mér ekki alveg liðið þannig,“ skrifar Hulda Hallgrímsdóttir, téð móðir, sem viðurkennir að eftir sumarið séu börn hennar orðin að lyklabörnum sem borði óhóflegt magn af núðlusúpu og grilluðum samlokum. Sömuleiðis hafi skjátíminn verið rýmkaður allverulega. „Þær hafa verið duglegar að hitta vini, fara í sund og bjarga sér. En þeim hefur líka leiðst ótæpilega og síðustu vikurnar hafa þær talið niður dagana þar til skólinn byrjar aftur.“ Hún bendir þar á að grunnskólabörn á Íslandi séu í sumarfríi í um tíu og hálfa viku. „Taki foreldrar þrjár eða fjórar vikur í frí standa eftir sex til sjö vikur sem þarf einhvern veginn að brúa með námskeiðum, sumarfrístund, ömmum og öfum, vinum, vinnu að heiman og almennum reddingum.“ Lausnin sem foreldrar reiði sig á séu gjarnan sumarnámskeiðin, en þá taki við „námskeiðakvíði“. „Ein mamma sem ég þekki lýsti námskeiðakvíðanum, eins og ég kýs að kalla hann, vel í vor: Náum við plássi? Hvað ef vinurinn nær ekki plássi? Hvað ef refresh-takkinn festist? Hrynur vefurinn undan álagi?“ Sama móðir hafi stungið upp á námskeiði um skráningu á sumarnámskeið, sem fælu meðal annars í sér æfingar í öndun og væntingastjórnun. „Svo er það verðið,“ heldur hún áfram og kveðst þekkja til einnar sem varði 230 þúsund krónum í sumarnámskeið fyrir börnin sín tvö. Og svo séu námskeiðin oft ekki nema þrír eða fjórir tímar á dag. Segir hún dóttur sína nánast aðeins hafa komist á eitt námskeið í sumar, sveitanámskeið sem hún hafi elskað, en það hafi verið hálftíma akstur þangað og námskeiðið stóð í þrjá tíma. „Tveir tímar í skutl fyrir þriggja tíma námskeið,“ skrifar Hulda, sem telur slíkt ekki vera raunhæfa lausn fyrir stóran hluta vinnandi foreldra. Hún spyr því hvort börnin þurfi virkilega svona langt sumarfrí og nefnir að í Danmörku sé sumarfríið um sex vikur og í Noregi um átta. „Af hverju ekki að ræða hvort við eigum að stytta sumarfríið og dreifa frídögum betur yfir árið, eða fjölga kennsludögum?“ spyr hún. „Og ef við ætlum að halda í svona langt sumarfrí þurfa í það minnsta að vera til raunveruleg heilsdagsúrræði sem ganga upp með fullri vinnu og kosta ekki hálfan handlegginn.“ Núverandi fyrirkomulag geri ráð fyrir baklandi, sveigjanlegri vinnu og djúpum vösum og auðvitað sé það langt frá því að allar fjölskyldur búi við þann veruleika. „Ég elska kennara og skil vel að þeir elski sumarfríið sitt,“ skrifar hún. „Við hin elskum þetta bara ekki.“
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Símanotkun barna Frístund barna Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira