Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. ágúst 2026 15:00 DJ Margeir þeytti skífum á Menningarnótt og frumflutti þar lagið „Strike A Pose (I'm Wearing Versace“ með rapparanum Magugu. Plötusnúðurinn DJ Margeir varð innblásinn af stjörnulögfræðingnum Villa Vill og lét smella af sér mynd á skýlu og Versace-skyrtu í Hótel Keflavík. Ljósmyndin gat af sér lagið „Strike a Pose (I'm Wearing Versace)“ með rapparanum Magugu sem þeir frumfluttu á Menningarnótt. Margeir ætlar svo að taka lagið enn lengra og búa til skúlptúr eftir ljósmyndinni.
Bresk-nígeríski rapparinn Magugu mætti á Menningarnótt, beint frá Berghain í Berlín, til að frumflytja nýtt lag hans og DJ Margeirs, „Strike A Pose (I'm Wearing Versace)“, á tónleikunum Moment. Lagið má rekja aftur til Instagram-síðu Villa Vill en þar birtir lögfræðingurinn reglulega af sér myndir klæddur í Versace og önnur ítölsk merki, oftar en ekki í sinni eftirlætis borg, Napoli. Plötusnúðurinn DJ Margeir sá eina af myndum Villa, fylltist innblæstri og hélt til Keflavíkur. Ljósmyndin sem var innblástur Margeirs. Á Versace-skyrtu og skýlu í Keflavík Margeir mætti í Versace-heilsulindina á Hótel Keflavík með filmuvél og Versace-skyrtu úr kvennalínu merkisins frá 1994. Hann klæddi sig þar í skýlu og skyrtuna, setti á sig naglalakk og fangaði lúkkið á filmu. Margeir lét smella af sér mynd í spa-inu í Hótel Keflavík. Úr varð mynd sem Margeir kallar „Rólegur Villi Vill!“ í höfuðið á fyrirmyndinni. „Sköpunarferlið kemur sífellt á óvart og getur svo sannarlega verið alls konar. Langskemmtilegast er auðvitað þegar hægt er að hlæja mikið á meðgöngunni,“ segir Margeir. „Einhver virðist hafa sett tíkall í trúðinn, enda er þetta jestermaxxing af hæstu gráðu og hver hefði trúað því að Instagram síðan hans Villa Vill myndi hrinda af stað þessari atburðarrás,“ bætir hann við. Ljósmynd verður lag Því næst kom bresk-nígeríski rapparinn Magugu við sögu en þeir félagar kynntust á teknóklúbbi í Lissabon. Magugu mætti í stúdíóið til Margeirs og spurði hvort þeir ættu ekki að taka eitthvað upp saman. Margeir sýndi honum ljósmyndina og setti aðeins eitt skilyrði: lykilorð lagsins yrði að vera „Versace“. Margeir og MaGuGu í góðu stuði. MaGuGu skildi strax í hvaða átt þetta stefndi, acid-maskínan fór á fullt swing og fljótlega fæddist „Strike A Pose (I’m Wearing Versace)“ sem er sannkallað hip-house, samtvinnað úr hipphoppi og hústónlistinni, þaðan sem DJ Margeir er sprottinn. Lagið kom út föstudaginn 21. ágúst og er fáanlegt á öllum helstu streymisveitum. Magugu kom síðan til Íslands á Menningarnótt til að frumflytja lagið með Margeiri á tónleikunum Moment sem voru í ár haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru. Magugu mætti galvaskur til Reykjavíkur beint úr einni helgustu teknókirkju veraldar, Panorama-barnum á næturklúbbnum Berghain, þar sem hann kom fram kvöldið áður. DJ Margeir og MaGuGu trylltu lýðinn á Menningarnótt. Magugu reyndist sömuleiðis eiga óvænta Íslandstengingu en hann heitir réttu nafni Magnús og var skírður í höfuðið á Íslendingnum Magnúsi Magnússyni, sem stýrði spurningaþættinum Mastermind á BBC í 25 ár. „Tengingarnar eru því víða. Það er næstum eins og þetta hafi allt verið skrifað í skýin“ segir Margeir ennfremur. Smíðaði skúlptur sem verður boðinn upp Margeir hefur smíðað skúlptúrinn „Rólegur Villi Vill“ í tilefni af söfnuninni fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Verkið er sett saman úr ljósmyndinni sem kom öllu af stað og dýrindis Versace-flísum úr Flísabúðinni, listaverk í þrívídd. Hér má sjá skúlptúrinn í smíðum. Ein vídd til viðbótar er svo að fá Villa sjálfan til að sjá um bakraddir í remix-i lagsins sem er í smíðum, en Villi hefur nú þegar líst yfir miklum áhuga að fá að taka þátt enda er hann yfirlýstur aðdáandi Gianni og Donatellu Versace. Söfnunin mun halda áfram til mánaðarmóta og skúlptúrinn fer í sölu í lok vikunnar og fer uppboðið fram á Instagram-síðu DJ Margeirs. Allir fjármunir sem safnast renna óskiptir í Minningarsjóð Bryndísar Klöru og hæstbjóðandi eignast gripinn. „Þessi söfnun skiptir mig máli og þess vegna skora ég á alla sem hafa skemmt sér með okkur á Klapparstígnum í gegnum árin að styðja við átakið. Hver króna telur auk þess sem sálin auðgast við það að styðja málefni sem er jafn brýnt og þetta,“ segir Margeir um söfnunina. Hægt er að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru og eiga séns á að vinna góða vinninga í leiðinni inni á Moment.is. Skúlptúrinn er búinn til úr ljósmyndinni og Versace-flísum.
Tónlist Menningarnótt Ítalía Tíska og hönnun Myndlist Tengdar fréttir Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur í rúm tíu ár haldið blokkarpartýið MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt. Tónleikarnir hafa alltaf verið ókeypis en í ár verða þeir haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og gestir hvattir til að styrkja sjóðinn. Þá mun Margeir jafna öll framlög sem berast, allt að 500 þúsund krónum. 16. ágúst 2026 11:30 Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Fleiri fréttir Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur í rúm tíu ár haldið blokkarpartýið MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt. Tónleikarnir hafa alltaf verið ókeypis en í ár verða þeir haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og gestir hvattir til að styrkja sjóðinn. Þá mun Margeir jafna öll framlög sem berast, allt að 500 þúsund krónum. 16. ágúst 2026 11:30