Viðskipti erlent

Inn­kalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna

Samúel Karl Ólason skrifar
Tsla var fyrst til að framleiða bíla með innfelda hurðahúna. Sú hönnun hefur í kjölfarið verið notuð á fjölda rafmagnsbíla.
Tsla var fyrst til að framleiða bíla með innfelda hurðahúna. Sú hönnun hefur í kjölfarið verið notuð á fjölda rafmagnsbíla. EPA/JESSICA LEE

Yfirvöld í Kína hafa gert bílaframleiðendum að innkalla um 4,3 milljónir rafmagnsbíla þar í landi vegna innfelldra hurðahúna. Þeir hafa verið bannaðir í Kína en eftir að hurðahúnarnir hafa verið bendlaðir við dauðsföll í tveimur slysum í Kína hefur aukinn þrýstingur verið settur á forsvarsmenn bílafyrirtækjanna um að bæta hönnun bílanna og þá sérstaklega hurðahúnanna.

Innköllunin nær til bíla frá Tesla, XPeng, Xiaomi og Geely. Í flestum, ef ekki öllum,  tilfellum er um stærstu innkallanir fyrirtækjanna að ræða.

Hurðahúnar eins og þeir sem um ræðir sáust fyrst á Teslum en eru nú algengir á mörgum rafmagnsbílum. Þeir eru látnir falla inn í hurð bílanna og í sumum tilfellum eru þeir hannaðir til að opnast út þegar eigandi bílsins nálgast hann.

Tvö banaslys sem tengjast rafmagnsbílum Xiaomi í Kína hafa ýtt undir reiði í garð þessara hurðahúna. Í slysunum biluðu rafmagnskerfi bílanna og reyndist ekki hægt að opna hurðarnar á þeim, samkvæmt frétt BBC.

Forsvarsmenn Tesla gáfu á föstudaginn út tilkynningu um að verið væri að innkalla nokkrar týpur bíla fyrirtækisins í Kína. Til stendur að koma fyrir viðvörunarmiðum á bílunum og gera hugbúnaðarbreytingar sem eiga að sjá til þess að þegar bílarnir lenda í árekstri þá lækki rúðurnar.

Enn sem komið er liggur ekki fyrir hvort grípa eigi til svipaðra aðgerða annars staðar í heiminum.

Eins og áður segir bönnuðu ráðamenn í Kína innfellda hurðahúna fyrr árinu. Bannið tekur gildi um næstu áramót og verður þá ólöglegt að selja bíla í Kína nema þeir hafi hefðbundna hurðahúna, sem þarfnast ekki rafmagns, beggja megin á öllum hurðum.

Sambærilegt frumvarp hefur verið lagt fram á þingi í Bandaríkjunum og eftirlitsstofnanir í Evrópu hafa einnig kallað eftir aðgerðum vegna innfelldra hurðahúna.

Í frétt Reuters er haft eftir sérfræðingi að rafmagnsopnanir á bílahurðum hafi orðið til vandræða. Í sumum rafmagnsbílum séu sérstök kerfi til að opna dyr innan frá án rafmagns, eins og með því að toga tvisvar sinnum í hurðahúninn.

Í Teslum sé þetta kerfi þó í mörgum tilfellum illfinnanlegt og ómerkt. Í Kína stendur til að merkja það betur.

Í Bandaríkjunum hafa þó nokkur dómsmál verið höfðuð gegn Tesla þar sem því hefur verið haldið fram að farþegar eða ökumenn hafi slasast eða jafnvel dáið eftir að hafa fests inni í logandi bíl. Ökumenn hafa einnig kvartað til yfirvalda í Bandaríkjunum yfir því að hafa ekki getað náð börnum sínum út úr bílum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×