Orðin háð því að vera „enginn“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 09:02 Ástarsaga Sóleyjar og Mar er nokkuð óvenjuleg. Aðsend Sóley Vera Helgadóttir var 17 ára þegar hún fór ein til Brasilíu í árs skiptinám sem hún hafði sjálf safnað fyrir. Eftir það var ekki aftur snúið. Síðan hefur hún búið, stundað nám, unnið og ferðast víða erlendis og fundið leiðir til að laga hversdagslífið að því að vera stöðugt á hreyfingu. Ferðalögin eru enda fyrir löngu hætt að vera tímabundið ævintýri eða frí. Þau eru einfaldlega lífsstíll.
Í dag er Sóley 31 árs og starfar sjálfstætt sem UI/UX-hönnuður, sem gerir henni kleift að vinna nánast hvar sem hún er stödd. Nú ferðast hún um Evrópu í kamper með brasilískum kærasta sínum og sinnir vinnunni á leiðinni, hvort sem vinnuaðstaðan er kaffihús, bókasafn eða bíllinn sjálfur. Ekki bara eitt langt sumarfrí Sóley er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Löngunin til að komast út fyrir landsteinana kom snemma fram og hún segist sem barn hafa heillast af sögum um fólk sem flakkaði á milli staða. Síðar varð Frakkland fyrsta áfangastaðahugmyndin. Kvikmyndin Ratatouille átti þar meira að segja sinn þátt; Sóley fékk áhuga á frönsku og ákvað að fara þangað í skiptinám. Hún fór snemma að safna. Sextán ára sótti hún um vinnu og tók sérstaklega fram í umsókninni að hún væri að leggja fyrir vegna fyrirhugaðs skiptináms. Á þeim tíma kostaði skiptinám með AFS rúma milljón króna og Sóley hafði sett sér það einfalda, og jafnframt metnaðarfulla markmið að safna milljón. „Ég fæddist ekki með silfurskeið í munninum. Ég var bara að vinna og safna. Ég setti meira að segja í atvinnuumsóknina mína að ég væri að safna fyrir skiptinámi til Frakklands. Ég var sextán ára og var bara ákveðin í að láta þetta gerast.“ Þegar hún var komin nálægt því að eiga milljón komst hún hins vegar að því að Rotary bauð upp á skiptinám fyrir mun lægri upphæð. Þá fór Frakkland skyndilega að virðast fullnálægt. Hún vildi lengra. Eftir nokkuð skrautlega ákvarðanatöku varð Brasilía fyrir valinu, þrátt fyrir að Sóley vissi lítið sem ekkert um landið og vissi ekki einu sinni að þar væri töluð portúgalska. Hún fór 17 ára til Birigui, minni borgar í São Paulo-fylki, og kunni að eigin sögn aðeins örfá orð í tungumálinu þegar hún lenti. „Ég er svolítið þannig að ég vil ekki alltaf vita allt áður en ég fer. Ég horfi ekki einu sinni á trailer áður en ég horfi á bíómynd. Ég fór til Brasilíu og kunni kannski fimm orð en það var bara no way back eftir þetta.“ Brasilía hefur oftar en einu sinni orðið vendipunktur í lífi Sóleyjar.Aðsend Í skiptináminu dvaldi hún hjá fleiri en einni fjölskyldu. Við aðra þeirra myndaðist sterkt samband sem hefur haldist fram á þennan dag og fjölskyldan tekur enn á móti henni þegar hún kemur til Brasilíu. Eftir árið sneri Sóley aftur heim, kláraði menntaskóla og dúxaði. Þá tók næsta ferð við. Hún fór meðal annars í Asíu- og heimsreisu og síðar til Bandaríkjanna í eitt ár á vegum Rotary. Mynstrið varð að mörgu leyti einfalt: koma heim, vinna, safna og fara aftur út. Stundum var hún í námi, stundum á ferðinni og stundum nýtti hún skólastyrki eða önnur tækifæri til að láta hlutina ganga upp. Hún leggur þó áherslu á að ferðalögin séu ekki eitt langt sumarfrí. „Ég held að ég hafi bara einu sinni farið í svona ferð þar sem ég var bara á bakpokaferðalagi, að sjá allt og njóta og vera í fríi allan tímann. Annars hefur þetta alltaf verið lífsstíll. Ég er ekki adrenalínisti og ég er ekki að fara að sýna mig hoppa út úr flugvél. Ég reyni bara að lifa mjög venjulegu lífi, halda rútínu og vinna.“ Vinnan opnaði dyrnar Sóley fór síðar í nám í Kaupmannahöfn þar sem hún lærði blöndu af markaðsfræði, hönnun, frumkvöðlafræði og nýsköpun. Meðfram náminu vann hún hjá fyrirtæki tengdu Novo Nordisk. Þegar náminu lauk gat fyrirtækið ekki ráðið hana áfram með sama fyrirkomulagi en bauð henni að vinna fyrir sig sem verktaka ef hún færi út í sjálfstæðan rekstur. Sóley greip tækifærið. Í dag hefur hún unnið sjálfstætt í um fjögur og hálft ár og starfar sem UI/UX-hönnuður. Hún segir reksturinn hafa gengið vel og vinnuna hafa gert henni kleift að halda áfram þeim lífsstíl sem hún vill. Hún tekur einnig að sér íslensk verkefni og vill gera meira af því. „Ég fer bara á mismunandi skrifstofur, bókasöfn eða kaffihús til að vinna, stundum vinn ég bara í bílnum. Ég er mjög heppin að geta unnið sjálfstætt. Það eru auðvitað gallar við að vera mikið ein að vinna, en mér finnst samt miklu betra að ráða mér sjálf. Ég veit að ég vinn best þannig og lifi best þannig.“ Covid-tímabilið hafði töluverð áhrif á þessa þróun. Fyrir heimsfaraldurinn segist Sóley nánast ekki hafa getað unnið heima. Hún fór frekar snemma í skólann og sat þar fram á kvöld til að ljúka verkefnum. Þegar fjarvinna varð skyndilega eðlilegur hluti af tilverunni breyttist þetta og síðan hefur staðsetningin haft sífellt minna að segja. Hitti kærastann og sá hann svo ekki aftur í sjö ár Brasilía hefur oftar en einu sinni orðið vendipunktur í lífi Sóleyjar. Um tvítugt var hún í heimsókn hjá vinkonu í strandborg í landinu þegar hún kynntist manninum sem síðar varð kærasti hennar, Mar Azul Salviano de Andrade. „Það er gaman að nefna það að nafnið hans er mjög sérstakt hér í Brasilíu, en það nafnið þýðir sem sagt „Blár sjór“,“ segir Sóley. Þau kynntust fyrir tilviljun á ströndinni. Sóley hafði áður hitt foreldra hans þar en einn morguninn, þegar vinkona hennar ákvað að sofa út, fór hún ein niður á strönd til að njóta síðasta dagsins áður en hún héldi áfram ferð sinni. Þar hitti hún Mar Azul og þau tóku tal saman. Dagurinn þróaðist fljótt í heilan ævintýradag. Þau fóru meðal annars á bananabát, á kajak út að eyjum og á stand-up bretti, kíktu í bakarí, fóru út að borða og elduðu saman í tjaldinu hjá fjölskyldu hans. Þau voru saman frá morgni og fram undir ellefu um kvöldið. „Við vorum bara allan daginn saman. Þetta var bara einn dagur en ég fann strax mjög sterka tengingu við hann.“ Daginn eftir hélt Sóley áfram ferð sinni. Þau Mar Azul hittust ekki aftur næstu sjö árin. Sambandið rofnaði þó ekki alveg. Þau fylgdust hvort með öðru á Instagram og spjölluðu öðru hvoru saman. Sóley tekur fram að þau hafi ekki verið í fjarsambandi heldur einfaldlega haldið vináttunni við. Hún skrifaði jafnframt um hann í dagbókina sína og lýsti þar sterkri tengingu sem hún hafði fundið þegar þau kynntust. Sjö árum síðar var Sóley stödd í Danmörku, nýútskrifuð og óviss um hvað hún vildi gera næst. Hún hafði sett eigur sínar í geymslu og var farin aftur á flakk. Þegar hún fór að velta fyrir sér nýrri ferð til Brasilíu hafði hún samband við Mar Azul. Hann spurði hvort hann mætti ferðast með henni. „Ég ætlaði bara að stoppa aðeins í Brasilíu og við ætluðum að ferðast eitthvað saman. Svo endaði þetta bara þannig að ég var þar í heilt ár. Það var eiginlega no way back eftir það.“ Sóley og Mar hittust fyrst þegar Sóley var um tvítugt, sáust ekki í sjö ár en fundu síðan aftur hvort annað og eru nú komin á fjórða ár saman.Aðsend Árið 2026 eru þau komin á fjórða ár sambandsins. Mar Azul ferðast gjarnan með Sóleyju og hann hefur þegar komið einu sinni til Íslands. Hann hyggst koma aftur með henni til Íslands í haust. Prófaði að vera „fullorðin á Íslandi“ Í desember ákvað Sóley að gera dálitla tilraun. Hún kom heim frá Brasilíu og ætlaði að prófa að vera „fullorðin á Íslandi“ í hálft ár. Hún keypti sér íbúð. Niðurstaðan kom henni sjálfri dálítið á óvart: Henni fannst mjög gott að vera hér. „Ég hélt ekkert endilega að ég myndi fíla að búa á Íslandi. Svo prófaði ég það og var bara: Úps, nei nei, ég vil líka vera hér. Ég elska að vera á Íslandi en ég er samt ekki tilbúin að stoppa. Óskin okkar er eiginlega að geta gert bæði, kannski hálft ár hér og hálft ár þar eða eitthvað slíkt.“ Íbúðin hefur því ekki orðið tákn um að ferðalögunum sé lokið heldur frekar leið til að tryggja tenginguna heim. Sóley leigir hana út þegar hún er erlendis og lýsir henni sem ákveðnum „aðgangsmiða“ að Íslandi. Eftir því sem árin erlendis hafa orðið fleiri hefur hún jafnframt fundið sterkari tengingu við íslenskuna og íslenska menningu. „Í hvert skipti sem ég kem heim finn ég bara hvað ég dýrka Íslendinga. Það er svo næs að geta talað sitt eigið tungumál. Ég finn rosalega sterka tengingu við menninguna mína og íslenskar konur og mig langar að taka þátt í því samfélagi.“ Það er líka ein ástæða þess að hún byrjaði að birta TikTok-myndbönd á íslensku. Hún segir sig í raun fá meiri athygli í Brasilíu en langaði sérstaklega að nota samfélagsmiðla til að tengjast Íslendingum. Viðbrögðin komu henni á óvart. @soley.vera Smá um mig ☀️ #islensktiktok #fyrirþig #islenska ♬ original sound - Sóley Vera ☀️ Eftir aðeins örfá myndbönd hafði fylgjendahópurinn farið að stækka og hún fékk skilaboð frá fólki sem spurði meðal annars um ráð varðandi ferðalög. Sóley vinnur sjálfstætt sem UI/UX-hönnuður og ferðast nú með kærastanum um Evrópu í kamper.Aðsend Fær að vera hún sjálf Þegar Sóley reynir að útskýra hvað heldur henni á ferðinni nefnir hún fyrst fólk. Hún lýsir sjálfri sér sem introvert en segist engu að síður hafa mjög gaman af því að spjalla við ókunnuga. Hún laðast sérstaklega að fólki sem hefur óvenjulega sögu eða annan vinkil á lífið. Svo kemur hin ástæðan. „Ég held að ég sé eitthvað smá háð því að vera „nobody“. Mér finnst óeðlilega gaman að mæta eitthvert þar sem enginn þekkir mig. Þá er enginn með einhverjar fyrir fram ákveðnar hugmyndir um hver ég er eða í hvaða ramma ég á að passa. Ég fæ bara að vera ég sjálf.“ Tilfinningin er ekki ný. Sóley rifjar upp að strax í grunnskóla hafi hana langað að skipta um skóla einfaldlega til að prófa nýjan stað þar sem ekki allir þekktu hana. Hún veltir því stundum fyrir sér hvort þessi þörf sé einhvers konar fíkn í nýtt upphaf, en segir hana fyrst og fremst hafa reynst sér vel. Það sama á að hennar sögn við um ferðalögin almennt. Hún er ekki að safna löndum eða elta stórkostlegar upplifanir. Það sem hún sækist eftir er mun einfaldara: Frelsi. Hún veit ekki nákvæmlega hvernig næstu ár líta út. Hún vill halda áfram að ferðast, vill eiga sterka tengingu við Ísland og segist jafnframt langa mikið í börn og vonast til að geta síðar sameinað fjölskyldulíf og ferðalög. „Ég veit stundum ekkert hvar ég sef um kvöldið. Kannski er það bara eitthvert bílastæði og kannski er ég næsta dag í geðveikt kósý rjóðri. Það er tilbreytingin og frelsið sem ég fíla. Ég ræð svo miklu sjálf.“
Ferðalög Íslendingar erlendis Samfélagsmiðlar Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Fleiri fréttir Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Sjá meira