Enski boltinn

Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blá­lokin

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Anton Stach tryggði Leeds sigur undir lok leiks. 
Anton Stach tryggði Leeds sigur undir lok leiks.  Michael Steele/Getty Images

Leeds sótti 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Anton Stach skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu undir lok leiks.

Leikurinn verður seint sagt fjörugur en mjög fá færi litu dagsins ljós og allt leit út fyrir að jafntefli yrði niðurstaðan. Það breyttist skyndilega Stach stillti sér upp í aukaspyrnu á 88. mínútu.

Stach tók spyrnuna við horn vítateigsins, alls ekki úr góðu skotfæri, en lét vaða yfir varnarvegginn og boltinn endaði í netinu.

Mat Sels er líklega ekki mjög ánægður með sína markvörslu við þeirri spyrnu en á endanum var það klaufaleg og illa tímasett tækling hjá Nikola Milenkovic sem kostaði Nottingham Forest stig í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×