Björguðu veikum söngvara í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Jón Þór Stefánsson skrifar 22. ágúst 2026 13:33 Ferðamaður á leið yfir Fimmvörðuháls varð skyndilega veikur og þurfti aðstoð. Landsbjörg Björgunarsveitir björguðu í gær veikum einstaklingi sem hafði verið í ferð með sönghópi á leið yfir Fimmvörðuháls. Aðstæður voru erfiðar, í mikilli þoku, í brattri brekku, í ríflega kílómetershæð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. „Upp úr klukkan hálf sex í eftirmiðdaginn í gær, föstudag, barst Neyðarlínu aðstoðarbeiðni frá sönghópi sem var á leið yfir Fimmvörðuháls, vegna skyndilegra veikinda eins úr hópnum. Staðsetning hópsins og eðli veikindanna voru þess eðlis að björgunarsveitir voru kallaðar út á mesta forgangi og fyrsta viðbragð keyrði austur að Skógum í forgangsakstri. Einnig var þyrluáhöfn boðuð út,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að talsverð þoka hafi verið á hálsinum, lágskýjað og lítið skyggni. „Ljóst var að erfitt gæti reynst fyrir þyrlu að komast að vettvangnum.“ Þá varð ljóst þegar fyrstu hópar björgunarfólks komu á staðinn að vettvangur var í brattri brekku, skammt austur af Fimmvörðuskála, í ríflega þúsund metra hæð. Mynd frá aðgerðum gærkvöldsins.Landsbjörg Boðaðar voru út björgunarsveitir víða af Suðurlandi, frá Vík í austri að Árborgarsvæðinu sem og Vestmannaeyjum, en þaðan flutti björgunarskipið Þór fjallabjörgunarmenn sem voru svo sóttir af björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli í Landeyjahöfn. Fyrstu hópar voru komnir á vettvang rétt um sjöleytið í gærkvöldi. Þá mun líðan sjúklings hafa verið nokkuð stöðug en sjúkraflutningamenn frá HSU sem fóru á staðinn með björgunarsveitum hófu þegar að hlúa að viðkomandi. „Þarna var ljóst að þyrla kæmi ekki að notum, en henni var þá lent á flugvellinum á Skógum og beið þar átekta ef flytja þyrfti sjúkling með hraði. Björgunarmenn hófust handa við að koma fyrir tryggingum og línum til að flytja sjúkling niður bratta brekkuna að þeim stað sem bílar og björgunartæki önnur komust, en um talsvert brattlendi er að fara sem og ís og snjó sem tekur ekki upp á þessum slóðum.“ Í tilkynningunni segir að um klukkustund síðar hafi verið búið að koma sjúklingnum niður brekkuna og í björgunarsveitarbíl sem svo flutti hann niður af hálsinum og að sjúkrabíl. Þá var ástand hans metið þannig að ekki væri þörf á flutningi með þyrlu, sem flaug þá aftur til Reykjavíkur. Frá vettvangi.Landsbjörg „Ásamt sjúklingi voru nokkrir samferðamenn hans og aðstandendur fluttir niður, sem og ferðamaður sem hafði orðið eftir í Baldvinsskála þegar hópur hans, þessum hóp ótengdur, var á göngu yfir hálsinn. Sá kenndi einhverra eymsla í baki og treysti sér ekki til að halda áfram för en hafði ákveðið að gista í Baldvinsskála og meta stöðuna að morgni.“ Alls tóku rétt um sextíu manns þátt í aðgerðinni sem var að mestu lokið um klukkan tíu í gærkvöldi.
Björgunarsveitir Rangárþing eystra Mest lesið Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Aftur í skólastjórastólinn Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Erlent Fleiri fréttir Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent