Fótbolti

Aftur­elding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Axel Óskar skoraði fyrir Aftureldingu í kvöld. 
Axel Óskar skoraði fyrir Aftureldingu í kvöld.  vísir

Afturelding vann stórsigur á Ægi, 7-0, þegar liðin mættust í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

Gestirnir úr Mosfellsbæ höfðu yfirhöndina frá upphafi og komust yfir á 34. mínútu þegar Bart Kooistra skoraði. Joacim Holtan bætti öðru marki við í uppbótartíma fyrri hálfleiks og Afturelding fór því með 2-0 forystu inn í hálfleik.

Síðari hálfleikur var algjör einstefna. Haukur Brink skoraði þriðja markið á 53. mínútu og Holtan var fljótur að bæta sínu öðru marki við, aðeins tveimur mínútum síðar.

Axel Óskar Andrésson gerði svo 5-0 á 58. mínútu áður en Róbert Dadason tók við keflinu. Hann skoraði tvívegis undir lok leiksins, á 83. og 89. mínútu, og fullkomnaði þar með 7-0 sigur Aftureldingar.

Sigurinn er mikilvægur fyrir Aftureldingu í toppbaráttu Lengjudeildarinnar. Liðið var í öðru sæti fyrir leikinn með 36 stig eftir 18 leiki og hefur nú bætt við þremur stigum og er á toppi deildarinnar.

Ægir átti hins vegar enn einn erfiðan dag. Liðið sat í neðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn með aðeins átta stig og hafði tapað síðustu fimm leikjum sínum. Tap kvöldsins þýðir að liðið hefur nú fengið á sig 23 mörk í síðustu sex deildarleikjum.

Þá vann ÍR-Gróttu 3-1 úti á Seltjarnarnesi en Guðjón Máni Magnússon skoraði tvö fyrir ÍR sem fór upp í áttunda sæti deildarinnar með sigrinum. Grótta er í því sjötta. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×