„Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. ágúst 2026 20:45 Sölvi Geir var svekktur með frammistöðu Víkings í fyrri hálfleik en axlar sjálfur ábyrgð á tapinu. Paweł/Vísir „Ég er aðallega svekktur með hvernig við spiluðum sem lið í fyrri hálfleik,“ sagði Sölvi Geir Ottesen eftir 1-3 tap Víkings gegn Borac Banja Luka í umspili Sambandsdeildar Evrópu.
Víkingur byrjaði leikinn skelfilega og fékk síðan á sig tvö mörk með skömmu millibili á 21. og 23. mínútu. „Mér fannst við alls ekki spila okkar leik [í fyrri hálfleik]. Við vorum seinir að öllu, létum boltann ganga hægt og fáum á okkur tvö mjög klaufaleg mörk. Það var bara sofandaháttur í varnarleiknum. Við spiluðum virkilega lélegan fyrri hálfleik. Þetta er einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila, og það á slæmum tímapunkti. Segjandi það þá er þetta sem betur fer ekki lokaniðurstaðan, einvígið er ekki búið. Við eigum útileikinn eftir og þurfum bara að vera bjartsýnir með það. Við höfum komið áður til baka en þurfum að eiga miklu betri leik úti í Bosníu,“ sagði Sölvi. „Blóðugt að fá þannig mark á okkur“ Víkingur bætti úr sinni spilamennsku og minnkaði muninn loksins á 75. mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði markið úr vítaspyrnu sem Aron Elís Þrándarson fiskaði. Fram að því höfðu Víkingar fallið nokkrum sinnum við í vítateignum en ekkert var dæmt fyrr en loksins undir lok leiks. „Mér fannst skrítin lína sett í þessum leik. Þegar þeir voru að dekka okkur fengu þeir að ríghalda okkur, tosa í okkur. Við fengum vítaspyrnu undir lokin en hefðum hæglega getað fengið fleiri vítaspyrnur út frá mínu sjónarhorni. Þeir eru með VAR þarna til að aðstoða sig en virtust ekki gefa sér neinn tíma í að skoða þetta almennilega. Það er svekkjandi að þeir fái að stoppa sóknirnar okkar með því að tosa okkur niður, en það er ekki ástæðan fyrir því að við töpuðum þessum leik.“ Eftir það virtist leikurinn vera að sveiflast Víkingi í vil en þá fengu heimamenn á sig annað klaufalegt mark. „Þriðja markið [hjá Borac Banja Luka] setur okkur í erfiða stöðu. Þetta er fáránlegt mark, enn og aftur erum við að fá á okkur mark eftir klippuskot fyrir utan teig, sem fer í gegnum okkur eða breytir um stefnu. Það er blóðugt að fá þannig mark á okkur, því mér fannst við byrjaðir að herja á þá. Ég var farinn að sjá fyrir mér að við myndum jafna og koma okkur inn í leikinn.“ „Ég tek þetta tap á mig“ Þjálfarinn vill samt ekki kenna leikmönnum um og axlar fulla ábyrgð á tapinu. „Ég tek þetta tap á mig. Það er á ábyrgð þjálfarans að stilla strákana rétt og þeir komu ekki rétt stemmdir út í fyrri hálfleikinn. Ég tek ábyrgð á því og þarf líka að líta inn á við, hvernig æfingavikan var og fundirnir, við þurfum allir að gera betur… Ég taldi þetta vera rétta byrjunarliðið og rétta kerfið til að spila í en við þurfum bara að skoða það í sameiningu.“
Sambandsdeild Evrópu Víkingur Reykjavík Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Enski boltinn Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sport Fleiri fréttir Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Sjá meira