Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Kristján Már Unnarsson skrifar 20. ágúst 2026 22:00 Haukur Suska Garðarsson, ferðaþjónustubóndi í Hvammi í Vatnsdal. Egill Aðalsteinsson Hópreið yfir Húnavatn þykir eitt mesta ævintýrið í hestaferðum úr Vatnsdal. Fyrirtækið er orðinn einn stærsti vinnuveitandi sveitarinnar með á annan tug starfsmanna en viðskiptavinirnir eru mestmegnis konur.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnavatnssýslur, að bænum Hvammi í Vatnsdal. Þaðan var verið að reka stóð sem taldi um 130 hross. Áfangastaðurinn var Þingeyrar. Þar fræddust viðskiptavinir fyrst um hið fornfræga höfuðból Húnvetninga en svo var lagt á hestana og stigið á bak. Horft frá Þingeyrum í átt til Vatnsdals.Egill Aðalsteinsson Þarna sáum við dæmi um þá atvinnusköpun sem fylgir íslenska hestinum. Á hlaðinu á Þingeyrum var 25 manna hópur erlendra ferðamanna að leggja af stað í hestaferð. Haukur Suska Garðarsson og starfsmenn hans höfðu búið gestina undir fimm daga leiðangur. „Það eru ferðir hér um Hópið og yfir Kjöl og Arnarvatnsheiði,“ sagði Haukur. Tímabilið er frá byrjun júní til byrjun október. Vetrartíminn fer svo í að temja hross fyrir næsta sumar. Hestamennirnir lögðu af stað frá Þingeyrum.Egill Aðalsteinsson Frá Þingeyrum sáum við hópinn ríða í átt að Húnavatni. „Húnavatnið er svolítið skemmtilegt að ríða yfir. Þetta er dálítill spotti yfir vatnið og fer svona vel upp á miðja síðu á hestunum. Þetta er svona ævintýri. Maður heyrir svona aðeins í stelpunum. Þær eru svona pínu smeykar fyrst. Svo venst þetta strax. Þetta er mikið spennandi,“ sagði ferðaþjónustubóndinn. Riðið yfir Húnavatn. 25 hestakonur voru í hópnum, allar erlendar.Egill Aðalsteinsson Já, ferðamennirnir eru bara konur. En hvað er þetta með konur - og útlendar konur og íslenska hestinn? „Þær eru alla vega ekki að koma út af okkur körlunum sko. Það er hesturinn, það er pottþétt. Þær eru bara í miklum meirihluta. Það er nú sérstakt núna, það eru bara konur í þessum hópi. Oft eru nú svona tveir, þrír, fjórir karlar með, en þær eru í miklum meirihluta.“ Hrossin sem fóru yfir Húnavatn voru milli 120 og 130 talsins.Egill Aðalsteinsson Íslandshestar eru í eigu nokkurra hrossabænda. „Við erum með ferðir um allt land í raun og veru við félagarnir; á Kálfhóli fyrir sunnan og við erum á Snæfellsnesi og svo í Þingeyjarsýslunni.“ Haukur í viðtali við hesthúsin á Þingeyrum.Egill Aðalsteinsson Svona hestaferð kostar hátt í 300 þúsund krónur á mann, en þá er allt innifalið; matur, gisting og akstur til og frá Reykjavík. Haukur segir ferðamennina mikla Íslandsvini. „Þetta eru svo tryggir og góðir ferðamenn. Þetta er fólk sem er að koma aftur og aftur og er að kaupa af okkur þessa miklu þjónustu.“ Reiðkonurnar tilbúnar að leggja af stað.Egill Aðalsteinsson Hjá Hauki starfa allt að fjórtán manns við hrossaútgerðina í Vatnsdal. „Heima í Hvammi eru kannski svona sex, sjö manns. Það þarf að sinna eldhúsi og gistiaðstöðunni. Og svo reiðmennirnir sem eru með gestina. Svo er ég með annað eins gengi með mér á fjöllunum, á Kili og Arnarvatnsheiðinni.“ Frá Hvammi í Vatnsdal.Egill Aðalsteinsson Í Vatnsdal segir hann nóg pláss fyrir hrossin og nóg gras fyrir þau að bíta. „Vatnsdalurinn er, og svo sem Hvammur, er mjög vel staðsettur. Það er stutt hérna út í sandana hérna, Hópið og Húnavatnið. Svo er bara tveggja, þriggja tíma reið, þá ertu bara kominn í frelsið. Hálendið bara eins og það blasir við okkur,“ sagði Haukur Suska Garðarsson, ferðaþjónustubóndi í Hvammi í Vatnsdal, en kvennareiðina yfir Húnavatn má sjá hér:
Hestar Ferðaþjónusta Húnabyggð Dýr Landbúnaður Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira