„Versta ár ævi minnar“ Sindri Sverrisson skrifar 20. ágúst 2026 10:32 Romelu Lukaku komst með Belgíu í 8-liða úrslitin á HM en þar tapaði liðið 2-1 fyrir Spáni. Getty/Nicolo Campo Belgíski framherjinn Romelu Lukaku segist hafa gengið í gegnum erfiðasta ár ævi sinnar á síðustu leiktíð. Hann missti föður sinn og var beittur fjárkúgun fyrir jarðarförina, glímdi mikið við meiðsli og átti í stormasömu sambandi við þáverandi vinnuveitendur sína í Napoli.
Lukaku opnaði sig um þessa erfiðu tíma í viðtali við belgíska miðilinn Het Laatste Nieuws en þessi fyrrverandi framherji Manchester United, Everton og Chelsea sér fram á bjartari tíma núna, eftir að hafa spilað á HM í sumar og samið við tyrkneska félagið Fenerbahce. „Þetta var versta ár ævi minnar. Ég ákvað að yfirgefa Napoli því ég heyrði af hlutum og ákvörðunum sem höfðu þegar verið teknar. Fyrst svo var þá var best að ég færi. Fullyrðingar um að ég væri ekki í formi voru bara ekki sannar. Þeir sögðu það örugglega bara á Ítalíu svo að hægt væri að útskúfa mér, en ég er í hundrað prósent standi,“ sagði Lukaku. Þessi 33 ára gamli markahrókur lék samtals aðeins sjö leiki fyrir Napoli á síðustu leiktíð en hann meiddist alvarlega í læri í leik í ágúst í fyrra. Honum gekk erfiðlega að ná sér alveg af þeim meiðslum og eftir ítrekað bakslag ákvað Lukaku að sinna endurhæfingu heima í Belgíu, við litla kátínu Napoli-manna. Ekki bætti úr skák að Lukaku missti föður sinn í september í fyrra, og var beittur fjárkúgun af mönnum sem sögðust ekki ætla að láta lík föður hans af hendi nema að hann greiddi ákveðna upphæð. Lukaku og Jordan, yngri bróðir hans sem er einnig fótboltamaður, enduðu á að mæta ekki í jarðarförina sem fram fór í Kinshasa, höfuðborg Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. Núna er Lukaku mættur til Tyrklands og byrjaður að spila fyrir Fenerbahce, eftir að hafa verið orðaður við heimkomu til Anderlecht þaðan sem hann fór til Chelsea fyrir 15 árum síðan. „Þetta er ný reynsla en hátt og mikið atvinnumannastig. Þið vitið hvað ég þarf. Ég þarf hvatninguna og vil spila á eins háu stigi og ég get. Hérna fæ ég að spila í sterkri deild, berjast um titla og hver veit, kannski jafnvel keppa í Meistaradeild Evrópu. Það yrði gott fyrir mig og landsliðið,“ sagði Lukaku. Fenerbahce gerði 1-1 jafntefli á heimavelli við Lyon í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í Meistaradeildinni. Liðin mætast aftur næsta miðvikudag, í Frakklandi.
Tyrkneski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira