„Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 19:55 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Samsett Bæði fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra segja stýrivaxtahækkun í dag hafa verið vonbrigði. Félags- og húsnæðismálaráðherra hafði vonast eftir óbreyttum stýrivöxtum og segir að ríkisstjórnin sé með augun á boltanum.
Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í dag og eru þeir nú átta prósent. Ákvörðunin kemur þrátt fyrir vaxandi slaka í þjóðarbúinu, hækkandi atvinnuleysi og veikari einkaneyslu. Rætt var við bæði þá Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson um vaxtahækkun og næstu skref ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri sagði í dag að aukin verðbólga væri drifin áfram af launahækkunum á opinberum markaði, skattahækkunum, hækkunum á ýmsum opinberum gjöldum og hækkunum á ýmsum innfluttum vörum vegna stríðsátaka. Félags- og húsnæðismálaráðherra hafði vonast eftir óbreyttum stýrivöxtum og segir að ríkisstjórnin muni gera sitt. „Þó að ég hafi óttast þetta þá eru þetta auðvitað vonbrigði,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Við tökum það auðvitað til okkar varðandi opinber gjöld. Við erum með mörg járn í eldinum, við erum með augun á boltanum. Ég er sannfærður um það að þrátt fyrir skellinn í dag munum við ná árangri fyrr en seinna.“ Gögn styðji ekki fullyrðingar Seðlabankans Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir gögn Hagstofu Íslands um áhrif opinberra gjalda á verðlag ekki styðja fullyrðingar Seðlabankans. „Það er mjög einfaldlega hægt að fletta þessum tölum upp. Hvort Seðlabankinn hafi gert það áður en hann kom með þessa fullyrðingu veit ég ekki en það er nú ekki alveg þannig að gögnin styðja þessa fullyrðingu.“ Ríkisstjórnin hafi ekki náð þeim árangri í efnahagsmálum sem hún hefði viljað. Lítið þurfi til að verðbólguvæntingar verði óraunhæfar og háar til lengri tíma og erfitt hafi reynst að ná þeim niður. „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað og það er alveg ljóst að þetta eru vonbrigði að sjá hvernig þetta hefur þróast,“ segir Daði Már. Hins vegar sé ekki rétt að ríkisstjórnin hafi ekki staðið með Seðlabankanum og í fyrsta sinn frá árinu 2019 sé hún að skila ríkisrekstri hallalausum. Mestu máli skipti að ná hallaleysi, að sýna aðhald í ríkisrekstri og að ríkið stuðli ekki að þenslu. Leiðin áfram sé ekki að lækka gjöld „Vandamálið er langvarandi agaleysi sem við fáum það verkefni að takast á við. Það höfum við gert, af ábyrgð, og það tekur tíma og ég vildi að það gengi hraðar. Það hins vegar að fara út í einhverjar falsanir á verðlagi með því að lækka gjöld sem þarf síðan að fjármagna með einhverjum öðrum hætti er ekki leiðin áfram,“ segir Daði Már. Ríkið hafi átt í samtölum við aðila vinnumarkaðarins frá því snemma í vor þegar ljóst var í hvað stefndi. „Þau samtöl eru í mjög góðum gangi. Ég geri ráð fyrir því að um leið og niðurstaða liggur fyrir í því verði hún kynnt. En hún verður auðvitað sameiginleg milli okkar og aðila vinnumarkaðarins svo ég get ekki tjáð mig um einstök atriði þar. Hins vegar er alveg ljóst að við höfum komið að því borði mjög viljug til að koma til móts við þær ábendingar sem þar hafa komið fram,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra.
Seðlabankinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Kjaramál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Sjá meira