Innlent

Lítið jökul­hlaup hafið í Múla­kvísl

Kjartan Kjartansson skrifar
Múlakvísl er jökulá á Suðurlandi með upptök í Mýrdalsjökli. Hlaup verða reglulega í ánni.
Múlakvísl er jökulá á Suðurlandi með upptök í Mýrdalsjökli. Hlaup verða reglulega í ánni. Vísir/Jóhann K.

Veðurstofan segir lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl með mikilli gasmengun. Vatnshæð í ánni hafi ekki hækkað enn sem komið er en það gæti mögulega gert á næstu dögum.

Rafleiðni í ánni hefur hækkað jafnt og þétta undanfarna sólarhringa og er nú sögð óvenjuhá fyrir árstíma í tilkynningu Veðurstofunnar. Það bendi til þess að lítið hlaup sé nú í gangi. Hlaup af þessari stærðargráðu eru sögð vel þekkt í Múlakvísl. 

Mikil gasmengun fylgir hlaupinu að þessu sinni. Brennisteinsvetni mældist yfir heilsuverndarmörkum á gasmæli við Lágujvola, um tvo kílómetra frá jaðri Kötlujökuls.

„Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn. Hægviðri undanfarna daga eykur einnig hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×