Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 11:20 Jóhann Berg Guðmundsson í þungum þönkum. Það styttist í ákvörðun hjá honum um framtíðina. Getty/Alex Nicodim Jóhann Berg Guðmundsson segist enn vera að íhuga hvort hann haldi fótboltaferlinum áfram eða láti skóna á hilluna. Hann bíður eftir réttu tilboði en mun í millitíðinni hlaupa fyrir gott málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.
Jóhann rifti samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í byrjun febrúar. Hann lék í kjölfarið gegn Mexíkó, sinn 102. A-landsleik, en síðan þá hefur ríkt óvissa um framhaldið. „Þetta er eitthvað sem við fjölskyldan erum að taka ákvörðun um. Eins og er held ég öllu opnu en auðvitað fer ákvörðun að koma um hvort ég haldi áfram að spila eða hvort þetta sé komið gott. Við ætlum að gefa okkur nokkrar vikur,“ sagði Jóhann í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Jóhann lék í áratug á Englandi, lengst af með Burnley, og áður í fimm ár með AZ í Hollandi. Eftir tvö ár í Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum spannar ferill hans erlendis í atvinnumennsku því sautján ár. Þarf að vera nógu spennandi „Auðvitað er þetta búinn að vera langur fótboltaferill. Verð 36 ára í október og maður er orðinn eldgamall í þessu sporti. Þetta er búinn að vera frábær ferill en það er ekkert útilokað eins og er,“ sagði Jóhann. „Á þessum tímapunkti þarf þetta að vera nógu spennandi til að maður vilji þetta. Maður getur ekki verið 80 prósent í fótbolta. Ég þarf að vilja gera þetta almennilega. Eins og er hefur það ekki komið upp en við sjáum til hvað gerist.“ Jóhann Berg hefur spilað 102 A-landsleiki og var algjör lykilmaður í besta liði sem Ísland hefur átt.Getty/Filip Filipovic Aðspurður hvað það væri þá sem þyrfti til þess að hann héldi áfram, nógu há laun eða annað, svaraði Jóhann: „Sitt lítið af hverju. Það getur verið laun, góður staður til að búa með fjölskyldunni. Maður er með þrjú börn og vill að þeim líði vel,“ sagði Jóhann sem hefur komið sér fyrir á Spáni, þar sem hann giftist einmitt eiginkonu sinni Hólmfríði Björnsdóttur fyrir fjórum árum. „Við ætlum að búa á Spáni í einhvern tíma alla vega, þar sem krakkarnir verða í skóla,“ sagði Jóhann en vill hann þá ekki helst spila á Spáni? „Það væri voða gaman en við sjáum til hvað gerist í þeim málum. Eins og er þá er allt í rólegheitum,“ sagði Jóhann sem kvaðst reikna með að halda áfram afskiptum af fótbolta eftir leikmannaferilinn, til að mynda sem þjálfari eða yfirmaður knattspyrnumála. Hleypur fyrir Krísuvíkursamtökin Jóhann hleypur hálfmaraþon á laugardaginn, í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, til styrktar Krísuvíkursamtökunum. „Ég hef kynnst mikilvægu starfi samtakanna í gegnum pabba minn, Guðmund, sem hefur starfað fyrir þau undanfarin ár. Í Krýsuvík fá einstaklingar sem glíma við fíkn og oft erfiða áfallasögu langtímameðferð og stuðning til að byggja líf sitt upp á nýtt. Því miður komast færri að en vilja vegna takmarkaðra fjármuna og biðlistar eru langir. Ég vil með hlaupinu vekja athygli á þessu mikilvæga starfi og safna fé svo fleiri fái tækifæri til meðferðar og nýs upphafs,“ segir Jóhann á vef RMÍ en hægt er að heita á hann með því að smella hér.
Landslið karla í fótbolta Fótbolti Bítið Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Fleiri fréttir Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira