Handbolti

Glæ­nýtt gólf fyrir fyrir frum­raun Arons en stúkurnar bíða

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurgeir Árni Ægisson og félagar í Kaplakrika hafa haft í nógu að snúast í sumar áður en ný leiktíð hefst í Olís-deildinni.
Sigurgeir Árni Ægisson og félagar í Kaplakrika hafa haft í nógu að snúast í sumar áður en ný leiktíð hefst í Olís-deildinni. Sýn Sport

FH-ingar hafa staðið í ströngu í sumar að koma íþróttasalnum í Kaplakrika í stand fyrir næsta tímabil í handboltanum. Nú hefur verið skipt um parket í þessum fornfræga íþróttasal.

Stefán Árni Pálsson heimsótti Kaplakrika og steig inn á nýja parketið sem nú er komið í staðinn fyrir það gamla sem orðið var 36 ára gamalt.

„Það var orðið lúið. Það var búið að pússa það og slípa alveg niður, og svo var grindin á mörgum stöðum orðin léleg. Alls konar viðgerðir í gegnum tíðina, svo þetta var orðið tímabært,“ segir Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH.

Hann segir að gamla parketinu, sem svo margir eftirminnilegir leikir voru spilaðir á, hafi að mestu verið hent.

„En það var nú eitthvað varðveitt svo það getur nú verið að það verði nú uppboð á einhverjum flísum, og að gamlar stjörnur sjái í hillingum parketið þar sem þeir gerðu einhverja meistaratakta,“ segir Sigurgeir Árni léttur.

Gömlu stúkurnar nýttar fram yfir Evrópudeildina

Stúkurnar í Kaplakrika eru einnig upprunalegar og til stendur að skipta þeim út einnig en því hefur þurft að fresta um sinn.

„Það er aðeins flóknari framkvæmd. Stúkurnar eru ekki lagervara og það þarf að hanna þær út frá hverju húsi. Það er ýmislegt í þessu húsi sem þarf að sníða þetta að. Við vorum ekki nógu ánægðir með lausnina sem við fengum og það er verið að smíða ný útboðsgögn. Ef það er verið að gera þetta á annað borð þá þurfum við að vera fullkomlega sáttir með þetta,“ segir Sigurgeir Árni.

Gömlu stúkurnar verða því áfram í Kaplakrika í haust þegar Aron Pálmarsson hefur þjálfaraferil sinn og stýrir lærisveinum sínum meðal annars í spennandi Evrópuleikjum:

„Við erum að fara í Evrópudeildina sem hefst í lok næsta mánaðar. Við sáum það að nýja stúkan yrði aldrei klár fyrir það og hugsuðum því að það væri betra að bíða fram yfir Evrópudeildina,“ segir Sigurgeir Árni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×