Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Bjarki Sigurðsson skrifar 17. ágúst 2026 18:11 Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld. Aðalmeðferð frelsissviptingarmáls sem oftast er kennt við Reykholt hófst við Héraðsdóm Suðurlands í dag. Einn hinna ákærðu mætti fyrir dóm í dag og spilaðar voru hljóðupptökur úr farsíma hans. Í þeim mátti heyra hann ræða við ýmsa um meinta frelsissviptingu og leggja á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður.
Fjallað er um málið í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30. Yfirhershöfðingi NATO segir ummæli Bandaríkjaforseta um Grænland hafa ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á norðurslóðum. Samband Íslands og Bandaríkjanna sé mjög sterkt og hann hefur ekki miklar áhyggjur af niðurstöðum könnunar sem sýna að fleiri Íslendingar telji Bandaríkin andstæðinga en bandamenn. Við verðum í beinni útsendingu frá nýjum kjörstað í Kringlunni og fáum tölur yfir þátttöku í utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Skiptar skoðanir eru á tilfærslu vínbúðarinnar á Akureyri, ári eftir að hún var gerð. Kaupmenn segja miðbæinn enn lifandi en afhendingarstaður netverslunar með áfengi var opnaður í húsnæðinu þar sem vínbúðin var áður. Afgerandi fall var í notkun á köldu vatni á meðan sólmyrkvinn gekk yfir í síðustu viku. Tölur frá Veitum sýna að fólk hélt í sér og eru þær ágætis vísbending um að þorri fólks hafi fylgst með atburðinum. Gamla sýslumannshúsið í Vatnsdal var kallað fallegasta hús Íslands á þarsíðustu öld en var orðið nánast ónýtt fyrir aldarfjórðungi. Þá fékk húnvetnskur húsasmiður ástríðu fyrir því að gera það upp og núna má aftur telja það í röð fegurstu húsa. Ólíver Elí Björnsson, sextán ára kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, gerði sér lítið fyrir og vann opna breska áhugamannamót pilta í golfi. Pilturinn hefur hlotið verðskuldaða athygli í kjölfarið og stefnir langt í íþróttinni. Í Íslandi í dag er rætt við Auði Helgadóttur Möller sem greindist með ristilkrabbamein í fyrra, aðeins 47 ára gömul. Hún hélt að hún væri laus við meinið en í mars síðastliðnum kom annað æxli í ljós. Til að losna við það þurfti að taka stóran part af ristlinum og endaþarminn allan. Auður er með varanlegt stóma eftir þessa raun en lætur ekki deigan síga, vill tala opinskátt um þetta ferli og gerir hæfilegt grín að sjálfri sér og Stómu litlu, eins og hún kallar stómað sitt.
Kvöldfréttir Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira