Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar 17. ágúst 2026 15:00 Þann 29. ágúst næstkomandi mun ég mæta á kjörstað og segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sú ákvörðun er tekin að vel ígrunduðu máli og djúpri sannfæringu um að íslensk heimili, almenningur og komandi kynslóðir eigi skilið meira réttlæti, gagnsæi og efnahagslegan stöðugleika til lengri tíma. Einn stærsti orsakavaldur misskiptingar á Íslandi er verðbólga og háir stýrivextir. Þegar verðbólgan rýrir kaupmátt og upprunaleg lán hækka á ógnarhraða vegna verðtryggingar, verður ákveðin hliðrun í samfélaginu. Þeir sem eiga mikla peninga og fjármagnseignir sjá eignir sínar ávaxtast á háum vöxtum. Fjármagnseigandi sem á milljarð fær uþb 75-85 milljónir í vexti á Íslandi á ári en um 20-30 milljónir á evrusvæði. Það er einfaldlega þannig að þessi mismunur er tekinn úr vasa íslenskra heimila. Háir vextir og verðbólga virka þannig í raun eins og ósýnilegur skattur sem færir fjármagn frá venjulegum heimilum til fjármagnseigenda og fjármálastofnana. Með því að taka upp stöðugan gjaldmiðil og komast í skjól stærra efnahagssvæðis hjálpar það hinum almenna borgara og eykur fjárhaglegan fyrirsjáanleika. Við hljótum, sem þjóð, að vilja rjúfa þennan vítahring og skapa réttlátara og eðlilegra umhverfi. Aðild að Evrópusambandinu snýst ekki síður um að efla neytendavernd, en á íslenskum markaði er samkeppni oft lítil og fákeppni ríkjandi á mörgum sviðum. Með fullri þátttöku í innri markaði ESB eykst samkeppni á öllum sviðum samfélagsins. Íslenskir neytendur greiða í dag verulegan þjónustukostnað í bankakerfinu miðað við það sem þekkist í nágrannalöndunum, en aukinn aðgangur erlendrar fjármálaþjónustu og strangari evrópskar reglur um gagnsæi myndu þrýsta þeim kostnaði niður og vernda almenning. Á sama hátt hefur tryggingamarkaðurinn lengi einkennst af hárri álagningu, en sterkara Evrópuregluverk tryggir gegnsærri skilmála og hvetur til virkari samkeppni, sem skilar sér í lægri iðgjöldum. Að lokum munu lægri tollar, einfaldara innflutningsferli og virkari samkeppni draga úr álagningu, meðal annars vegna gengisáhættu, á matvöru, fatnaði og öðrum nauðsynjum, sem skilar sér í lægra vöruverði og breiðara vöruúrvali fyrir heimilin í landinu. Við eigum að þora að taka þessa samtal lengra og sjá hverju samningurinn gæti skilað okkur. Að segja JÁ þann 29. ágúst er ekki lokaskrefið í sjálfu sér, heldur skref í þá átt að kynna sér valkostina af yfirvegun, með hagsmuni almennings að leiðarljósi. Með því að kjósa með áframhaldandi viðræðum veljum við tækifæri til að bæta lífskjör okkar allra og byggja upp réttlátara og stöðugra samfélag og tryggja um leið að íslensk heimili sitji við sama borð og nágrannaþjóðir okkar. Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sandra Sigurðardóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar