Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. ágúst 2026 15:00 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB. EPA/JOHANNA GERON Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið rekja prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir helstu samsæriskenningar sem spunnist hafa um Evrópusambandið. Stofnunin er þar ýmist teiknuð upp sem endurkoma Rómaveldis undir stjórn Andkrists, leynilegt framhald af Þriðja ríki Hitlers eða ný kommúnísk Sovétríki. En hvernig verður þunglamalegt og drepleiðinlegt evrópskt skrifræði að uppsprettu lygilegustu hrollvekja? Prófessorarnir telja sálfræðina að baki því einfalda að mörgu leyti. Þegar völd færast inn í flókið og fjarlægt stofnanakerfi getur reynst sálfræðilega þægilegra að trúa því að illgjarnir menn stjórni heiminum úr skuggunum heldur en að horfast í augu við flókinn veruleika og hægfara málamiðlanir. ESB getur því orðið að tómum striga sem fólk varpar sínum dýpsta ótta á. Táknfræði sem fór úrskeiðis og sæti Andkrists Evrópusambandið hefur að einhverju leyti unnið gegn sjálfu sér í augum kristinna bókstafstrúarmanna með sinni eigin táknfræði. Þingbyggingin í Strassborg er hringlaga og með ókláruðum toppi. Í augum „þeirra sem vilja sjá“ þykir byggingunni svipa óþægilega mikið til frægra málverka af Babelsturninum frá 16. öld, biblíulegu tákni um hroka mannkyns gegn Guði. Skækjan af Babýlon ríður um á hryllilegri skepnu.Taschen Þá hefur notkun sambandsins á forngrísku goðsögninni um Evrópu og nautið, sem prýðir meðal annars styttur í Brussel og evrumyntir, verið túlkuð bókstaflega sem vísun í „babýlonsku skækjuna“ úr Opinberunarbók Jóhannesar. Ein lífseigasta flökkusagan á netinu er svo sú að inni í Evrópuþinginu sé sætið 666 ávallt skilið eftir autt. Sætið sé sérstaklega frátekið fyrir sjálfan Andkrist þegar hann stígur fram til að taka yfir stjórn sambandsins. Á myndum af þinginu sést hins vegar að sætið er alls ekki autt. Fjórða ríkið eða EUSSR? Samsæriskenningar um Evrópusambandið stangast oft á, sem sýnir vel hvernig ólíkir hópar nota sambandið sem pólitískan spegil. Þeir sem óttast fasisma halda því fram að ESB sé í raun „Fjórða ríkið“, hannað í bakherbergjum svo Þjóðverjar geti náð stjórn á Evrópu án þess að hleypa af einu skoti. Vladímír Búkovskí bauð sig fram til forseta Rússlands árið 2007 en fékk á endanum ekki að bjóða sig fram.EPA Á hinum enda litrófsins eru þeir sem telja ESB vera kommúnískt alræðisríki, skammstafað EUSSR og því Sovétríki Evrópu. Sú líking var meðal annars borin fram af sovéska andófsmanninum Vladimír Búkovskí sem líkti framkvæmdastjórninni í Brussel beint við Politburo Sovétríkjanna. Í seinni tíð hefur skotmarkið svo færst yfir á alþjóðlega leikmenn á borð við Davos-elítuna en henni er meðal annars gefið að sök að stunda markviss útskipti á íbúum álfunnar fyrir innflytjendur. Fiskur, orka og herskylda á Íslandi Þegar þessar alþjóðlegu hugmyndir rata inn í íslenska orðræðu taka þær fljótt á sig staðbundna mynd sem endurspeglar sögulegan ótta smáþjóðar við yfirráð nýlenduvelda og ræningja. Hérlendis snúast samsæriskenningarnar því gjarnan um auðlindir. Lífseigasta sagan er að megintilgangur ESB með því að bjóða Íslandi inn í sambandið sé einfaldlega að komast yfir fiskstofnana – að evrópskir stórtogarar bíði þess eins að soga allt líf úr íslenskum sjó. Nýlega hefur einnig skotið upp kollinum hávær orðrómur á samfélagsmiðlum um að innganga í ESB muni sjálfkrafa þýða herskyldu fyrir íslensk ungmenni önnur en börn íslensku elítunnar. Hvort sem óttinn beinist að Babelsturninum í Strassborg eða erlendum stórtogurum á Íslandsmiðum eiga sögurnar það sameiginlegt að varpa fram ógnvæglegri mynd af heiminum þar sem hetjan berst við fjarlægt og myrkt skuggavald. Þáttur Skuggavaldsins um samsæriskenningar um Evrópusambandið er nú aðgengilegur á Tal og helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Unnur Borg og Gugga saman í paradís Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira