Bestu hlutverk Hayden Panettiere Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. ágúst 2026 13:48 Hayden Panettiere lék í þrjátíu kvikmyndum og tæplega þrjátíu sjónvarpsþáttaseríum á sínum ferli. Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar.
Panettiere lék í um þrjátíu kvikmyndum og á þriðja tug sjónvarpsþáttasería á sínum rúmlega þrjátíu ára ferli. Hún gaf út ævisögu sína, This Is Me: A Reckoning, fyrr á árinu þar sem hún veitti fólki innsýn inn í heim barnastjörnu í Hollywood og lífið bak við tjöldin þar á bæ. Í ævisögunni er að finna ýmsar hryllingssögur úr Hollywood og lýsti Panettiere því meðal annars hvernig móðir hennar, Lesley Vogel, gekk fram af henni þegar hún var umboðsmaður hennar í æsku. Sjá einnig: Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Hér að neðan er að finna tíu af helstu hlutverkum Panettiere á ferlinum og má segja að farið sé í gegnum feril hennar frá því hún var fjögurra ára barnastjarna og þar til hún varð heimsfræg sjónvarpsstjarna. One Life to Live (1994-97) Fyrsta hlutverk Panettiere í sjónvarpi var Sarah Roberts, dóttir hjónanna Tinu Lord og Cord Robers, í sápuóperunni One Life to Live sem var sýnd á ABC í rúm 43 ára frá 1968 til 2012. Panettiere var ein af sex leikkonum til að leika Roberts og gerði hún það í 26 þáttum frá 1994 til 1997. Guiding Light (1996-2000) Eftir að hafa leikið í einni sápuóperu tók Panettiere stökkið yfir í aðra vinsælli og langlífari sápuóperu, Leiðarljós á CBS. Panettiere lék karakterinn Lizzie Spaulding í 45 þáttum en í seríunni glímdi hún við hvítblæði og hlaut leikkonan mikið hrós fyrir frammistöðuna. Panettiere lék karakterinn í fimm ár áður en hún hætti en karakter Spaulding entist þó út alla seríunni sem er langlífasta sápuópera sögunnar. A Bug's Life (1998) Fyrsta kvikmyndin sem Panettiere lék í var kvikmyndin The Object of My Affection (1998) en sama ár talsetti hún maurinn Dot sem fer með stórt hlutverk í hinni geysivinsælu Pixar-mynd A Bug's Life. Panettiere talaði fyrir Dot sem má sjá hér lengst til vinstri. Teiknimyndin var fyrsta af mörgum talsetningarhlutverkum Panettiere sem talaði einnig inn á Disney-teiknimyndina Dinosaurs (2000) og fjölda tölvuleikja. Panettiere var tilnefnd á Grammy-verðlaununum árið 2000 fyrir barnaplötu sem hún talaði inn á upp úr A Bug's Life. Remember the Titans (2000) Fyrsta almennilega leikna hlutverk Panettiere á stóra skjánum var í íþróttadramanu Remember the Titans árið 2000. Kvikmyndin fjallar um svarta þjálfarann Herman Boone (Denzel Washington) sem er árið 1971 ráðinn til að þjálfa sameinað ruðningslið hvítra og svarta við menntaskólann T.C. Williams High School í borginni Alexandriu í Virginiu á kostnað hvíta þjálfarans Bill Yoast (Will Patton) sem þjálfaði liðið áður. Boone ræður Yoast sem aðstoðarþjálfara sinn og þarf svo að takast á við kergju innan liðsins á vellinum og utan hans samhliða aukinni spennu í samfélaginu milli hvítra og svartra. Panettiere leikur Sheryl Yoast, dóttur gamla þjálfarans, í myndinni og vann til verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki á Young Artist-verðlaununum. Panettiere sem Sheryl Yoats. Ally McBeal (2002) Mæðgurnar Ally McBeal og Maddie Harrington. Þegar Panettiere var þrettán ára lék hún persónuna Maddie Harrington, dóttur Ally McBeal, í fimmtu og síðustu þáttaröðinni af lagadramanu Ally McBeal sem voru sýndir á Fox frá 1997 til 2000. Stóra breytingin í fimmtu seríunni var innkoma Maddie sem birtist fyrirvaralaust og tilkynnir Allie að hún sé dóttir hennar. Serían gekk síðan að stórum hluta út á glímu Ally við móðurhlutverkið. Maddie leikur því lykilhlutverk í framvindu þáttanna og hefur mikil áhrif á endi þeirra. Heroes (2006-10) Heroes nutu mikilla vinsælda frá 2006 til 2010. Stærsta hlutverk Panettiere á ferlinum og það sem gerði hana að alvöru stjörnu í Bandaríkjunum var klappstýran Claire Bennet sem bjó yfir ofurkröftum í sjónvarpsþáttunum Heroes sem nutu mikilla vinsælda á NBC frá 2006 til 2010. Þættirnir fjalla um hóp fólks sem býr yfir yfirnáttúrulegum kröftum og þurfa að takast á við bæði dagsdaglegt líf sitt og raðmorðingja sem eltir þau á röndum. Persóna Panettiere var ein þeirra og fólust kraftar hennar í því að hún bjó yfir ómannlegum sársaukaþröskuldi. Þættirnir nutu mikilla vinsælda og gengu í fimm þáttaraðir. Panettiere lék í 77 þáttum af seríunni, meira en nokkur annar leikari þeirra, og vann til þó nokkurra verðlauna fyrir leik sinn. I Love You, Beth Cooper (2009) Í miðju Heroes-æði lék Hayden Panettiere klappstýruna Beth Cooper í rómantísku táningskómedíunni I Love You, Beth Cooper í leikstjórn Chris Columbus árið 2009. Panettiere í hlutverki Beth Cooper. Kvikmyndin byggir á samnefndri skáldsögu og fjallar um afreksnemandann Denis Cooverman (Paul Rust) sem ákveður við útskrift úr menntaskóla að tjá klappstýrunni Beth Cooper ást sína og hæðast að kærasta hennar og vinum hans. Denis býður Beth í kjölfarið heim til sín í partý en þangað mæta líka kærastinn og vinir hans til að hefna sín á gestgjafanum. I Love You, Beth Cooper fékk hræðilega dóma hjá gagnrýnendum og var ekkert sérlega vinsæl hjá áhorfendum. Þar var þó kannski helst lélegu handriti að kenna og slapp Panettiere vel frá sínu sem ólíkindatólið Beth Cooper. Scream 4 (2011) Hayden Panettiere gekk til liðs við Scream-kvikmyndaröðina og lék hryllingsaðdáandann Kirby Reed í Scream 4 (2011). Panettiere í hlutverki sínu sem Kirby Reed í Scream 4. Kvikmyndin var hálfgerð endurræsing á Scream-seríunni að því leyti að fjöldi nýrra leikara bættist í hópinn og öskurdrottningin Sydney Prescott (Neve Campbell) var ekki í eins stórri rullu og í fyrri myndunum þremur. Eftir að þriðja myndin hafði valdið áhorfendum miklum vobrigðum þá vakti fjórða myndin mikla lukku. Kvikmyndin fékk fína dóma hjá gagnrýnendum og gat af sér fleiri framhaldsmyndir þar sem Panettiere kom aðeins við sögu. Nashville (2012-18) Þótt Panettiere sé þekktust fyrir leik sinn í Heroes þá lék hún í mun fleiri þáttum af tónlistardramanu Nashville sem voru sýndir á ABC og CMT frá 2012 til 2018. Juliette Barnes er upprennandi stjarna. Nashville fjalla um goðsagnakenndu kántrísöngkonuna Raynu James (Connie Britton) sem má muna sinn fífil fegurri og upprennandi kantrípoppstjörnuna Juliette Barnes (Panettiere) sem rís upp vinsældarlistana á sama tíma og sú gamla rær lífróður. Þættirnir fengu frábæra dóma framan af og var Panettiere tilnefnd til tveggja Golden Globe-verðlauna fyrir leik sinn. Until Dawn (2015) Panettiere talsetti nokkra tölvuleiki á ferlinum, þar á meðal Disney-leikina Kingdom Hearts I-III sem komu út á árunum 2002 til 2012 og hrollvekjuna Until Dawn sem kom út á PS4 árið 2015. Until Dawn fjallar um átta vini sem koma saman í afsekktum bústað ári eftir að vinir þeirra hurfu á sömu slóðum. Leikmenn stýra öllum vinunum átta sem þurfa að lifa af heila nótt á meðan brjálaður morðingi eltir þau á röndum og önnur skrímsli hrella þau. Panettiere tók upp fjölda sena með hreyfiföngun (e. motion-capture) fyrir leikinn sem minnir um margt á kvikmynd vegna þess hvernig hann er hannaður.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Sjá meira