Vogunarsjóðsrisar bættu talsvert við stöðuna í kringum gengisfall Oculis
Tveir af stærstu vogunarsjóðum heimsins, sem byrjuðu að kaupa í Oculis undir lok síðasta árs, juku umtalsvert við stöðu sína á öðrum fjórðungi þegar hlutabréfaverð líftæknifélagsins féll eins og steinn eftir að eitt af þróunarlyfjum þess tókst ekki að ná aðalmarkmiðum sínum úr tveimur rannsóknum. Sumir erlendir fjárfestingarsjóðir hafa hins vegar í kjölfarið selt sig nánast alfarið út úr hluthafahópnum.
Tengdar fréttir
Sjóður Íslandssjóða tekur á sig 14 prósenta högg eftir stórt veðmál á Oculis
Annar af tveimur helstu hlutabréfasjóðunum í stýringu Íslandssjóða, ætlaður almennum fjárfestum, varð fyrir nærri fjórtán prósenta höggi í gær þegar Oculis lækkaði í verði um liðlega helming en langsamlega stærsta staða sjóðsins var bundin í bréfum líftæknifélagsins.
Íslenskir fjárfestar verða fyrir tugmilljarða höggi við gengishrun Oculis
Eitt af þremur þróunarlyfjum Oculis, sem fjárfestar höfðu bundið miklar vonir við, mistókst að ná aðalmarkmiðum sínum þegar niðurstöður úr tveimur fasa 3 rannsóknum voru tilkynntar síðla dags í gær og því verður ekki sótt um markaðsleyfi hjá FDA. Markaðsvirði félagsins, sem var áður um 250 milljarðar, féll í kjölfarið um helming á Bandaríkjamarkaði en íslenskir fjárfestar – einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og spákaupamenn – verða fyrir umtalsverðu höggi sem á eftir að smitast yfir á hlutabréfamarkaðinn í heild sinni.
Greinendur „hissa“ með niðurstöðuna hjá Oculis en mæla enn með kaupum
Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.
Umfang skortsölu jókst verulega eftir áfallið hjá Oculis
Fjárfestar hafa bætt talsvert í skortstöður með bréf Oculis eftir að líftæknilyfjafélagið greindi frá því fyrir fáeinum vikum að eitt af þróunarlyfjum þess hefði mistekist að ná aðalmarkmiðum sínum úr tveimur fasa 3 rannsóknum.
Erlendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Oculis
Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.
Bandarískur sjóður byggt upp um fimm prósenta stöðu í kjölfar útboðs Alvotech
Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.